Tune in, Turn on, Drop out
Ég nenni ekki að vinna meira í dag. Ég held ég fari út í búð að kaupa mér blúsmunnhörpu og eyði svo restinni af deginum sitjandi úti í horni að spila.
Já, og Patti Smith var algerlega æðisgengin í gær!
Ég nenni ekki að vinna meira í dag. Ég held ég fari út í búð að kaupa mér blúsmunnhörpu og eyði svo restinni af deginum sitjandi úti í horni að spila.
Já, og Patti Smith var algerlega æðisgengin í gær!
8. september 2005 klukkan 7:45
Í hvaða horni? Vertu nú duglegur að æfa þig á munnhörpuna og lagaðu svo endilega póstinn við tækifæri, hann virkar ekki
xxx
8. september 2005 klukkan 8:59
Ég svaf lítið í fyrrinótt og var smá þunnur, svo ég fór að sofa um kvöldmatarleytið. Um svipað leyti hefur rafmagnið farið, þannig að serverinn hér heima var ekki í gangi, vegna þess að ég hef óvart stillt hann til að kveikja ekki á sér sjálfkrafa eftir rafmagnsleysi.
9. september 2005 klukkan 23:46
Sæll, hirðfíflsvinur minn.
Reiknistofnun… hmmm… ég á í vandræðum með netið í Háskólanum. Kíki til ykkar á mánudaginn. Spennandi.
Ertu pabbi Erlu sem var með mér í bekk í Ísaksskóla og Austurbæjarskóla? Og kannski lítillar stúlku í Hlíðaskóla, hvar ég vann síðasta vetur?
10. september 2005 klukkan 0:22
Nákvæmlega! Ég man eftir því að þú varst einstaklega fríð stúlka. Ertu það enn? Og hvernig veistu að ég á litla stúlku í Hlíðaskóla, fyrst þú vinnur þar ekki lengur?
10. september 2005 klukkan 10:52
Ég sá þig þar í vor. Kannski í “nýnemakynningu.”
10. september 2005 klukkan 13:37
Ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti verið svo eftirminnilegur. :->
10. september 2005 klukkan 15:05
Ég er með rosalegt andlitsminni. Það er meiri fötlun en hæfileiki.
11. september 2005 klukkan 23:11
já það er það… fólk telur mann ýmist frík eða ofmetur eigin áhrif á mann.