Fleiri munnhörpur
Þar sem hver munnharpa nýtist bara í einni tóntegund, eða í besta falli tveimur (og það merkilega er að hvorug er sú tóntegund sem prentuð er á munnhörpuna) þá þarf maður yfirleitt nokkrar. Ég fór í Hljóðfærahúsið og keypti mér Hohner Proharp í D og Hohner Silver Star í C. Þessi síðarnefnda kostaði ekki nema 650 krónur. Þeir áttu enga í A, þannig að ég fór í Tónastöðina og bað þar um díatóníska munnhörpu í A. Einhver drengur við afgreiðsluborðið dró upp eina slíka og rétti mér og bauð mér að blása. Ég ætlaði að fara að hneykslast á að þeir hefðu engan físibelg, en þar sem ég var þegar búinn að ákveða að kaupa hana, þá sagði ég ekkert, heldur saug duglega úr fjórða gati og beygði nótuna niður um heiltón og upp aftur eins og ég hefði ekkert gert allt mitt líf nema láta munnhörpur breima. “Hvernig fara þeir að þessu að beygja tóninn svona?” segir drengurinn við stúlkur tvær sem stóðu sitthvorum megin við hann við kassann. “Ég las það í fyrradag á Internetinu hvernig það er gert” svaraði ég og gekk út.
Þessi munnharpa heitir Lee Oskar og er framleidd af japönsku fyrirtæki sem heitir Tombo og er besta munnharpan í safninu. Hún var líka dýrust, eða 2200. Ég ætla að fá mér fleiri af þessari tegund síðar.
Mín fyrstu mistök um daginn voru að kaupa munnhörpu sem er einungis hægt að nota í B (eða “H”, ef þú ert með Germaníska tónfræðimenntun) eða í versta falli F#. Slíkar munnhörpur eru merktar “E”.
I kid you not.
Lagalistinn sem ég spila með er svona, öll lögin eru með Rolling Stones:
Í A dúr, spilað með D munnhörpu:
Doncha Bother Me
Empty Heart
Everybody Needs Somebody To Love
Not Fade Away
One More Try
Route 66
Walking The Dog
Hitch Hike
Í E dúr, spilað með A munnhörpu:
I’m Alright
I’m Moving On
Susie Q
The Spider And The Fly
Í G dúr, spilað með C munnhörpu:
Who’s Driving Your Plane
Stoned
I Can’t Be Satisfied
The Under Assistant West Coast Promotion Man
What a Shame
You Can’t Catch Me
2120 South Michigan Avenue
Down Home Girl
Little Red Rooster
If You Need Me
11. september 2005 klukkan 20:09
Mér hefur enn ekki tekizt að skilja þessar munnhörpur. Kannski ætti ég að fá mér eina og prófa sjálfur, með hverju mælirðu?
11. september 2005 klukkan 21:46
Það ætti að vera augljóst af þessari grein! Lee Oskar í C, hefðbundin (diatonic) stilling. Fæst í Tónastöðinni í Skipholti 50d, kostar í kringum 2200 krónur.
Svo gleymdi ég einu lagi í listann, Money (That’s What I Want) sem er í D með Stones. Ég hef ekki neina munnhörpu í G, en ég prófaði C og það virtist virka.
11. september 2005 klukkan 23:58
Ég kemst ekki þangað. Ég er á Akureyri. Ég skoða hvað þeir eiga í Tónabúðinni við tækifæri. Annars átti ég hálft í hvoru við hvort þú mæltir með einhverri vefsíðu, til að læra af.
12. september 2005 klukkan 0:14
Skrifaðu bara “blues harp” eða “blues harmonica” í Google.
3. október 2005 klukkan 19:41
Sælt veri fólkið, ég var að spá hvar hægt sé að sjá nótur og hvernig maður spilar á munnhörpu, einhversstaðar á netinu
Kv. Biggi
4. október 2005 klukkan 0:03
Að spila á munnhörpu er eins og að kyssa konu. Það væri hægt að skrifa nótur að góðum kossi, en til hvers að fylgja því þegar maður gæti eins impróvíserað?
Það eina sem þú þarft að vita að til að spila blús í G notarðu C munnhörpu. Og ef þú hugsar þér að þú sért að kyssa konu og draga tunguna á henni út úr henni á meðan þú sýgur úr þriðja, fjórða eða fimmta gati á munnhörpunni, þá nærðu millitónum sem eru ekki í díatóníska skalanum.