Mér er sama hvort flugvöllurinn fari eða veri

Ég vil bara að lágflug yfir Reykjavík verði bannað.

Eða bara allt flug, eins og t.d. í Washington DC. Engin flugvél flýgur yfir London í minna en 3500 feta hæð. Flestir þéttbýliskjarnar í heiminum hafa svipaðar reglur. Miðstöðvar innanlandsflugs í Englandi eru Heathrow, Gatwick og Luton og enginn þeirra er nær bænum en 50 kílómetra.

Þetta er ekki spurning um hvar við viljum að flugvélarnar lendi, þetta er spurning um hvar við viljum að flugvélarnar hrapi.

Eitt svar við færslunni “Mér er sama hvort flugvöllurinn fari eða veri”

  1. Þá sagði eddi:

    ég er reyndar sammála þessu.. allt yfirflug ætti ekki að vera leyft því að það skapar óþarfa slysahættu.. þetta var í lagi svosem fyrir 20-30 árum, en eftir að þéttbýliskjarninn stækkaði og þær flugvélar sem eru að fljúga hér yfir stækkuðu að þá er þetta varla talið ráðlagt

Leggðu orð í belg