Styttur bæjarins

Undanfarið hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Reykjavíkurlista tekist á um hvort reisa eigi styttu af Tómasi Guðmundssyni skáldi í Reykjavík. Sjálfstæðismenn vilja Tómas, en Reykjavíkurlistinn vill sökum pólitískrar rétthugsunar fá styttu af einhverri konu. Óvíst er hvort fylkingar geti sæzt á nokkra niðurstöðu svo öllum líki.

Ég er hins vegar kominn með lausn á þessari deilu sem báðir flokkar ættu að vera harðánægðir með.

Það vantar styttu af homma. Tómas væri þar alveg tilvalinn.

Kvæði hans, “Þjóðvísa” er náttúrlega augljós skírskotun til samkynheigðs sambands hans við Jón Thoroddsen skáld.

Hin nýja stytta gæti jafnvel sýnt þá tvo saman sem unga menn og á fótstall líkneskisins væru grafin þessi orð skáldsins:

Ég hélt ég væri smámey og hugðist vera til
eins og hitt fólkið í bænum.

Leggðu orð í belg