Find out anything about anyone!

Jónína Benediktsdóttir hefur nýverið haldið því fram að Og Vodafone hafi brugðist trausti og skyldum þeim sem Internetþjónustum eru lagðar á herðar með því að njósna um tölvupóst hennar. Illt er ef satt reynist.

Ég hef hins vegar aðra tilgátu um hvernig þessi upplýsingaþjófnaður gæti hafa átt sér stað. Hægt er að kaupa búnað sem útbýr sérhannaða trójuhesta sem auðvelt er að koma fyrir í tölvu fórnarlambsins eins og hverjum öðrum vírus (veiruvarnarforrit finna einungis þekktar veirur og trójuhesta, flestir notendur t.d. Outlook smitast af ALLRI óværu sem á annað borð kemst inn í pósthólf þeirra) og eftir það hafa þeir fulla stjórn á tölvu viðkomandi og geta fylgst með öllu sem þar fer fram.

Þessi tækni hefur verið til í ýmsum útgáfum í fjöldamörg ár og er vel þekkt. Nýlegur þáttur í sjónvarpsþáttaröðinni Law and Order á Skjá Einum kom einmitt inn á þessi mál.

Þessi aðferð er mikið öruggari en sú að nota hlutdeild óheiðarlegra kerfisstjóra. Ekki bara eru færri vitorðsmenn að glæpnum, heldur eru upplýsingar þær sem bjóðast mikið meira tæmandi, t.d. er ekki víst að sendur póstur sé varðveittur á póstþjónum netþjónustunnar, svo dæmi sé nefnt.

Þetta er bara einn af þeim hlutum sem verður að hafa í huga þegar slík mál eru rannsökuð.

Ég held ég nenni samt ekki að fara nánar út í þá sálma.

5 svör við færslunni “Find out anything about anyone!”

  1. Þá sagði Joan Rivers:

    já var það ekki..

  2. Þá sagði Elías:

    Var hvað ekki?

    Annars sýnist mér að vandamál Jónínu virðast samkvæmt þessu geta verið mikið meiri og verri en hún virðist geta ímyndað sér.

  3. Þá sagði Elligella:

    Mér finst nú aðallega Jónína vera hafa hagað sér í þessu máli eins og forsmáð kona sem er að kafna úr höfnun og reiði og notar sínar aðstæður til að koma fram hefndum. Held reyndar að það fari ekki fram hjá nokkrum heilvita manni . Það veit jú öll þjóðin að hún og Jóhannes voru par. Aumingjans konan.

  4. Þá sagði Elías:

    Ég var nú að ýja að tæknilegum vandamálum, ekki persónulegum. :>

  5. Þá sagði Ásgeir:

    Köld eru kvennaráð.

Leggðu orð í belg