Lifi Mótmælin!
fimmtudaginn, september 1st, 2005Ég veit ekki, kannski umgengst ég svona skrýtið fólk, en það hefur undrað mig hversu almenn fordæming fólks á nýjustu mótmælum álversframkvæmdaandstæðinga hefur verið. Mér finnst þetta hins vegar frábært hjá þeim. Ekki vegna þess að ég er svona sammála málstað þeirra, sem ég reyndar er, heldur vegna þess að ég tel að annað væri ómögulegt í heilbrigðu þjóðfélagi en að ungir menn storki valdhöfum, sérstaklega þegar þessir sömu valdhafar hafa margsýnt og sannað að þeim er nákvæmlega sama um álit almennings á gerðum sínum.
Það þjóðfélag sem býr yfir ungmennum sem hafa þá dirfsku að standa uppi í hárinu á valdníðingum og taka gunnfána þeirra herskildi, það þjóðfélag býr yfir styrk, styrk fólksins, hinum sanna mannauð.
Ég er ekki viss um að ég vildi búa í þjóðfélagi án slíks fólks.
Ich sage euch: man muss noch Chaos in sich haben, um einen tanzenden Stern gebären zu können. Ich sage euch: ihr habt noch Chaos in euch. — Nietzsche