Glæpaklíkan upprætt

Þjófahyskið í Hvíta Húsinu er brátt á útleið. Hvernig stendur á því að það tók svo margt fólk svona langan tíma að uppgötva að þetta var bara samansafn af ómerkilegum lygurum, þjófum og loddurum?

George Walker Bush er lygari og þjófur, gersneyddur sæmd og laus við gáfur.
Þetta hefur verið augljóst hverjum heilvita manni síðan hann sóttist fyrst eftir forsetaembættinu. Ólíkt flestum öðrum þjófum hefur hann hins vegar í kringum sig hirð af undirlægjum sem öskra lygarnar eins hátt og þeir mögulega geta og japla upp eftir hverjum öðrum í von um að geta sleikt molana af borði þjófsins. Þessar undirlægjur eru meðal annarra Fox News, Drudge Report, CNN og Ríkisstjórn Lýðveldisins Íslands. Lygarnar voru hins vegar of augljósar og einfeldningslegar til að nokkur gæti hugsanlega fallið fyrir þeim nema grunnhyggin fífl. Saddam með gereyðingarvopn? Ha ha, fyndið. Aðrar lygar voru ekki einu sinni sagðar, heldur bara ýjað að, til dæmis eins og tengsl Saddams við hryðjuverkin þann 11. september 2001 (það fyrsta sem kom upp í huga mér þegar ég horfði á vél númer tvö fljúga á seinni turninn var að þetta væri endurtekning á Reichstagbrunanum. Göbbels var þar ekki fjarri með bensínbrúsa. Hvar var Cheney?). Eftir ræðu Bush um “möndul hins illa” varð meirihluti Bandaríkjamanna þess fullviss um að Saddam hefði staðið á bak við þetta.

Hvernig stendur á því að einu forsetar Repúblíkana síðan í Seinni Heimsstyrjöld sem hafa ekki verið sannanlega glæpamenn af ómerkilegustu sort eru Eisenhower, Ford og Bush eldri? Sennilega vegna þess að Bush eldri var nógu klókur að láta ekkert sannast á sig og hinir tveir voru bara amatörar í stjórnmálum.

Ég hef aldrei verið kommúnisti. Ég veit ekki einu sinni hvort ég geti kallað mig vinstri sinnaðan. Ég tel að framkvæmdavald ríkisvaldsins sé algerlega ónauðsynlegt og af hinu illa og megi skerast af og leggjast niður í heilu lagi. Hins vegar tel ég augljóst að hið kapítalíska kerfi sé idjótískasta hugmynd sem mannkynið hefur þurft að þjást fyrir. Ég meina, fólk sem trúir á draugafirrur eins “hina ósýnilegu hönd” þarf nauðsynlega að fara að láta athuga hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis með heilaefnaskipti sín. Og já, “hin ósýnilega hönd markaðarins” er augljóslega Hið Illa, ef slíkt er þá til.

Ég trúi á frelsi, en ég mun aldrei samþykkja að “trúfrelsi” sé yfirhöfuð æskilegt. Trúað fólk á ekki neinn stað í samfélagi hugsandi fólks. Það að kenna barni trú er ofbeldi gegn börnum af verstu sort. Guð er ekki til, ekki frekar en Ósýnilegi Bleiki Einhyrningurinn eða Fljúgandi Spagettískrýmslið. Það er ófrávíkjanleg staðreynd. Sérhver trú, hvort sem hún kallast Kristni eða Islam er geðveila sem stafar af andlegu ofbeldi í æsku.

Og já, ég er enn hættur að reykja.

Á einhver hér Samúræsverð sem hann eða hún getur selt ódýrt?

4 svör við færslunni “Glæpaklíkan upprætt”

  1. Þá sagði Árni:

    George Herbert Walker Bush er faðir núverandi forseta Bandaríkjanna, George Walker Bush.

  2. Þá sagði Elías:

    Frábært! Það er til fólk sem les þetta blogg! Ég er samt sem áður að hugsa um að endurskíra það og kalla það “Þögn er sama og samþykki”.

  3. Þá sagði Árni:

    Þögn er sama og samþykki? :)

    Þá verð ég nú aðeins að tuða…hvernig á að framfylgja banni við trú? Njósnir og endurmenntunarbúðir á vegum hins opinbera? Eða á það að vera einkaframtak að stöðva slíka hugsanakrimma?

  4. Þá sagði Elías:

    Að sjálfsögðu einkaframtak. Eftirlit verður svipað og eftirlit með hverju öðru ofbeldi gagnvart börnum.

Leggðu orð í belg