Edinborg er algerlega gegt kúl

Ég kom til Edinborgar árið 1990 og var þar um áramótin. Mér fannst þetta ekki neitt spes, enda hafði ég þá eytt árinu í ferðalögum um Suður-Evrópu og var með Napólí og hinn gríska hluta Suður-Ítalíu á heilanum, ásamt því sem Edinborg fölnaði í samanburði við Géneve sem hún minnti mig einhvern veginn á, köld, alvarleg og með höll í fjallshlíð í norðri sem öll borgin hringaði sig upp að. Allt annað við þessa borg virtist bara vera eins og léleg eftirlíking af London. Köldu húsin enn kaldari, vondi byggingarstíllinn enn verri, ekki hægt að kaupa alvöru mozzarella vera di bufala úti í búð.

Svo núna á elliárum mínum (sjá myndirnar http://elias.rhi.hi.is/elias-terrorist.jpg árið 1989 og http://elias.rhi.hi.is/beard.jpg í ágústmánuði 1990. Svona lít ég út í dag.), þegar ég er hættur að ferðast, þá gerist það allt í einu að ég uppgötva þessa frábæru borg Edinborg sem ég segi hér frá í næstu færslu.

Leggðu orð í belg