Gítarinn minn.
Þetta var ódýrasti gítarinn í Edinborg. Ég fór í 5 hljóðfæraverslanir og 2 skranbúðir. Allar höfðu fjölmarga gítara. Þetta var sá langódýrasti. Hann fékkst í skemmtilegustu búðinni, Scayles á Nicholson Street. Hann er handsmíðaður í Kína. Viðarlyktin er góð. Hann er stíflakkaður. Hann hefur náttúrulegan resonance í A, normaldreifðan í ellipsu +/- hálftón. Böndin eru 100% rétt miðað við flaututóna strengjanna. Hann hefur mjög breiðan og glaðan hljóm. Ég elska hann. Hann kostaði 59 pund með tösku.

21. desember 2005 klukkan 15:20
svo ég kvóti í vinkonu mína Paris Hilton “that’s Hot!”
21. desember 2005 klukkan 15:57
Já, ég vil gefa honum eitthvað kvenmannsnafn.