Archive for febrúar, 2006

Flaut

þriðjudaginn, febrúar 28th, 2006

Í gærkvöldi sat ég og fitlaði við gítarinn minn og þá varð mér hugsað til þín og þá flautaði ég þetta lag eftir hann Fúsa.

Kirkja Heilagrar Silvíu Nætur

föstudaginn, febrúar 24th, 2006

Þann 15. október síðastliðinn, á 161. afmælisdegi Nietzsches og 79. afmælisdegi Foucaults, fékk ég þá vitrun að ég ætti að stofna Kirkju Heilagrar Silvíu Nóttar.

Er síðan ekki bara einfalt formsatriði að skrá þennan söfnuð hjá Hagstofunni til að byrja að safna skattpeningum safnaðarmeðlima?

H.C. Andersen endurskoðaður

þriðjudaginn, febrúar 21st, 2006

Síðan ég fór að lesa reglulega fyrir yngri dóttur mína, en hún er sú fyrsta af mínum börnum sem ég el upp sjálfur, hef ég lesið barnasögur og ævintýri vandlegar en nokkru sinni áður.

Ég hef lesið bækur sjálfum mér til skemmtunar síðan ég var fjögurra ára gamall og þar á meðal alls kyns ævintýri og þjóðsögur og þar má fremst nefna fyrsta þjóðsagnasafnið sem ég eignaðist, en það eru Íslenskar Þjóðsögur og Ævintýri í samantekt Einars Ólafs Sveinssonar sem ég fékk að eilífðarláni frá afa þegar ég var sex ára og las með áfergju aftur og aftur fram eftir öllum aldri.

Nú er ég hins vegar farinn að lesa þessar sögur á allt annan hátt en ég gerði í æsku og er allt í einu farinn að skilja hvað Nietzsche og Wilde meintu með að segja að lestur væri skapandi iðja (og gott ef ekki þessir nýmóðins póst-mó-derni-star séu að segja það sama) og er nú kominn að niðurstöðu sem kemur jafnvel sjálfum mér á óvart:

H.C. Andersen er fyrirlitlegur höfundur.

Glæpir hans gegn mannsandanum er óteljandi, en ég skal telja hér upp nokkra meðan ég nenni:

  • Vesalings fátæk og munaðarlaus stúlka er látin sæta hinum grimmdarlegustu pyndingum sem að lokum leiða til dauða hennar af þeirri ástæðu einni að hún bar ekki nógu Lútherskan skilning á táknfræði lita. (Rauðu Skórnir)
  • Götubörn eru að breyta rangt ef þau stela, jafnvel þótt það verði til að bjarga lífi þeirra. (Litla Stúlkan Með Eldspýturnar)
  • Prinsessur eru búnar til úr öðruvísi efni en sótsvartur almúginn. (Prinsessan á Bauninni)

Ég ætla ekki að nefna Litla-Kláus og Stóra-Kláus til sögunnar, því það kemur enginn siðferðisboðskapur fyrir í þeirri sögu, þótt reyndar séu allar sögupersónurnar þar siðblindar með öllu.

Hins vegar finnst mér athyglisverð sú saga að Andersen hafi verið fyrirmyndin að Uriah Heep í David Copperfield eftir Dickens. Miðað við tóninn í sögum Andersens finnst mér það vera sérlega sennilegt.

Ef Andersen hefði skrifað Les Miserables þá hefði það verið stutt saga um vonda brauðþjófinn sem fékk makleg málagjöld í Bastillunni.

Var hann ekki líka Hegelisti?

Ég verð líka að hrósa því sem vel fer. Íslensk ævintýri eru best. Femínistar þurfa að fara að kíkja á sögur eins og t.d. Söguna af Hlini Kóngssyni sem eru algerar perlur.
Af þýddum ævintýrum eru Ævintýri Æskunnar í þýðingu Rúnu Gísladóttur best. Stíll hennar er margfalt betri en Steingríms Thorsteinssonar eða Þorsteins Thorarensens. Theódór Árnason var ekki slæmur heldur.

Nei, mér er ekkert heilagt

mánudaginn, febrúar 13th, 2006

Og get því ekki séð hvers vegna ég ætti að gera einhverja undantekningu fyrir múslimi.

Odessey and Oracle

mánudaginn, febrúar 13th, 2006

Odessey and Oracle Album Cover
Ég var að uppgötva eina mögnuðustu plötu sjöunda áratugarins. Hvernig fór þetta framhjá mér á sínum tíma? Ég veit að ég var bara 5 ára, en ég fylgdist vel með, goddamnit!

Er þetta ekki annars Múhammeð spámaður sem sést þarna fyrir miðri mynd?

Ætli Sigurður Bjóla hafi átt þessa plötu í safni sínu? Mér finnst allt í einu eins og sándið hjá Spilverki Þjóðanna sé ekki eins einstakt og mér fannst áður.

Hinar raunverulegu ástæður fyrir uppþotunum út af Múhammeðsmyndunum

mánudaginn, febrúar 13th, 2006

Samkvæmt heimildum mínum á DailyKos sem lesa má um á http://www.dailykos.com/storyonly/2006/2/5/13149/60748 var ekkert óvenjulegt við þessar myndbirtingar. Það sem var hins vegar óvenjulegt var hvernig Sádi-Arabíu tókst að vekja athygli allra múslima á myndunum þegar þær voru orðnar næstum því hálfs árs gamlar.

Og hvers vegna gerðu þeir það?

Til að draga athyglina frá vandamálum heima fyrir:

The most recent Hajj occurred during the first half of January 2006, precisely when the “outrage” over the Danish cartoons began in earnest. There were a number of stampedes, called “tragedies” in the press, during the Hajj which killed several hundred pilgrims. I say “tragedies” in quotation marks because there have been similar “tragedies” during the Hajj and each time, the Saudi government promises to improve security and facilitation of movement to avoid these. Over 251 pilgrims were killed during the 2004 Hajj alone in the same area as the one that killed 350 pilgrims in 2006. These were not unavoidable accidents, they were the results of poor planning by the Saudi government.

Svona var nú það.

Ísland sem öruggt svæði fyrir celebrities

laugardaginn, febrúar 11th, 2006

Íslendingar verða fljótlega að taka ákvörðun sem gæti skipt gríðarlega miklu máli fyrir framtíð þeirra í samfélagi þjóðanna: munum við halda áfram að vera plebbaþjóð sem selur burt einkalíf gesta sinna, eða munum við verða a celebrity safe zone?

Frjálshyggjumenn hafa stungið upp á að Ísland verði fríríki í tollamálum og er það góð hugmynd, en að Ísland verði ríki frelsis fyrir hina frægu hundeltu gæti jafnvel reynst affarasælara.