Ísland sem öruggt svæði fyrir celebrities
Íslendingar verða fljótlega að taka ákvörðun sem gæti skipt gríðarlega miklu máli fyrir framtíð þeirra í samfélagi þjóðanna: munum við halda áfram að vera plebbaþjóð sem selur burt einkalíf gesta sinna, eða munum við verða a celebrity safe zone?
Frjálshyggjumenn hafa stungið upp á að Ísland verði fríríki í tollamálum og er það góð hugmynd, en að Ísland verði ríki frelsis fyrir hina frægu hundeltu gæti jafnvel reynst affarasælara.
23. febrúar 2006 klukkan 10:52
Ég minnist þess að hafa lesið viðtal við Hákon fimmta Noregskonung í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum þar sem hann hælti Íslandi sem griðlandi hinna frægu. Var honum sérstaklega minnisstæð ferð í bláa lónið þar sem baðgestir létu sem þeir vissu ekki að hann væri konungur og var hann þeim ákaflega þakklátur fyrir.