Odessey and Oracle

Odessey and Oracle Album Cover
Ég var að uppgötva eina mögnuðustu plötu sjöunda áratugarins. Hvernig fór þetta framhjá mér á sínum tíma? Ég veit að ég var bara 5 ára, en ég fylgdist vel með, goddamnit!

Er þetta ekki annars Múhammeð spámaður sem sést þarna fyrir miðri mynd?

Ætli Sigurður Bjóla hafi átt þessa plötu í safni sínu? Mér finnst allt í einu eins og sándið hjá Spilverki Þjóðanna sé ekki eins einstakt og mér fannst áður.

6 svör við færslunni “Odessey and Oracle”

  1. Þá sagði Skarphéðinn:

    Sæll, datt hérna inn.

    Ég er algjörlega sammála, þó ég sjálfur telji hana eina bestu plötu allra tíma! Það er frábær samhljómur á henni allri, hún virkar frábærlega, sem heild og eitt og eitt lag í einu. Og söngurinn er top notch. Gömlu singlarnir frá Zombies eru líka þess virði að skoða, þó það sé auðvitað ekki jafn “gáfulegt” efni.

    Annað svona týnt masterpiece frá sama tímabili, en frá Los Angles þó, er Forever Changes með Love. Mæli með henni, ef þú þekkir hana ekki nú þegar. Ég sá Arthur Lee flytja hana í heild sinni fyrir um 2 árum í London, með Stockholm String and Brass, sem spiluðu á nýju SMiLE, og það er eitt það rosalegasta sem ég hef upplifað. Forever Changes er kannski meiri sýra en Odessey, en það er eitthvað sem tengir þær, eitthvað vibe. (Umslagið!)

    You Set The Scene, síðasta lag Forever Changes, í eyrum manns, ja, það líkast því að heyra Sigurós í fyrsta sinn, Viðrar vel til Loftárása kannski helst, það er svo grand, svo fallegt, og helsta statement þess mistæka Arthur Lee. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði undir því á tónleikunum!

    Ég hef þetta ekki lengra, en þakka þér fyrir að láta mig hugsa um Zombies og Love.

  2. Þá sagði Elías:

    Ég vissi af tilvist Forever Changes og hafði hlustað á hana einu sinni, endur fyrir löngu og fannst ekkert neitt sérstakt akkúrat þá.
    Mér finnst bara svo undarlegt að svona góð tónlist hafi dulist mér svo lengi.

    Zombies voru alveg definitely ekki nógu kúl á sínum tíma. Þeir voru snyrtilegir og með gleraugu og aðalhljóðfærið var hljómborð. Þar að auki eru textarnir eitthvað wimpy. Enginn svona töffari eins og John Lennon með morðhótanir í garð stúlkna sem ekki þýðast hann og þannig.

  3. Þá sagði Orri:

    Ansi skemmtó já.
    var downloada ólöglega (gegnum HÍ).

  4. Þá sagði Elías:

    Á ég að láta STEF vita? Er löggan ekki með svona Víkingasveit sem gengur um í SWAT göllum sem stendur STEF á?

  5. Þá sagði Atli Sig:

    Djöfull væri það töff!

  6. Þá sagði Elías:

    Busted by the fuzz while in possession of hot tracks? Man, what a bummer! Baad trip, man …

Leggðu orð í belg