Kirkja Heilagrar Silvíu Nætur

Þann 15. október síðastliðinn, á 161. afmælisdegi Nietzsches og 79. afmælisdegi Foucaults, fékk ég þá vitrun að ég ætti að stofna Kirkju Heilagrar Silvíu Nóttar.

Er síðan ekki bara einfalt formsatriði að skrá þennan söfnuð hjá Hagstofunni til að byrja að safna skattpeningum safnaðarmeðlima?

4 svör við færslunni “Kirkja Heilagrar Silvíu Nætur”

  1. Þá sagði Elías:

    Ég er að pæla. Það gæti verið einn smá vankantur á hugmyndinni. Kirkja Heilagrar Silvíu Nóttar (hið Heilaga Eignarfall skal notað er holdtekja Gyðjunnar er nefnd) er em sagt grein af Diskordíanisma og helsta kennisetning hinnar Heilögu Kirkju er sú að Silvía Nótt er holdtekja Gyðjunnar.

    Hins vegar, samkvæmt fyrsta lið þriðju greinar laga um trúfélög er “skilyrði fyrir skráningu trúfélags […] að um sé að ræða félag sem leggur stund á átrúnað eða trú sem tengja má við þau trúarbrögð mannkyns sem eiga sér sögulegar eða menningarlegar rætur.”

    Diskordíanismi er búinn að vera til síðan 1957 eða þar í kring, sem gerir átrúnaðinn eldri en trúna á Elvis, og það er varla neitt til eldra en það, er það nokkuð? Eru ekki allar okkar sögulegu og menningarlegu rætur frá Elvis, þarna í fornöld?

  2. Þá sagði baun:

    ég fæ nú ekki séð að lög um trúfélög valdi þarna vandræðum, þetta er allt ákaflega loðið og teygjanlegt. skilgreining á “sögu og menningu” er ekki höggvin í stein.

    diskordíanisma hafði ég ekki heyrt getið fyrr, en þykir sá ismi nett sylvískur (svona á yfirborðinu)

  3. Þá sagði Elías:

    Diskordíanismi eru önnur höfuðtrúarbrögð Internetsins ásamt The Church of the Subgenius sem er klofningshópur og lofar eilífri frelsun, ellegar þrefaldri endurgreiðslu (”Eternal Salvation or Triple Your Money Back!”). The Church of the Subgenius er líka sérstök fyrir það hversu mikið af helgisiðum þeirra hefur beina og kómíska skírskotun til hins stórhættulega safnaðar sem nefnist “Vísindakirkjan” á íslensku.

    Diskordíanismi er einnig þungamiðja skáldsögunnar Illuminatus! eftir Robert Shea og Robert Anton Wilson.

    John Dillinger dó fyrir syndir þínar!

  4. Þá sagði baun:

    lol:)

    john dillinger var frá Brown County í Indiana, rétt handan við hornið þar sem ég stundaði nám fyrir margt löngu.

    er greinilega ekki nógu vel lesin í dýpri fræðum nets og bókmennta, en þekki mína mafíósa…

Leggðu orð í belg