Archive for mars, 2006

Forn mansöngur

föstudaginn, mars 31st, 2006

I don’t want you to be high
I don’t want you to be down
Don’t want to tell you no lie
Just want you to be around

Please come right up to my ears
You will be able to hear what I say

Don’t want you out in my world
Just you be my back street girl

Please don’t be part of my life
Please keep yourself to yourself
Please don’t you bother my wife
That way you won’t get no help

Don’t try to ride on my horse
You’re rather common and coarse anyway

Don’t want you out in my world
Just you be my backstreet girl

Please don’t you call me at home
Please don’t come knocking at night
Please never ring on the phone
Your manners are never quite right

Please take the favors I grant
Curtsy and look nonchalant, just for me

Don’t want you part of my world
Just you be my backstreet girl

Jagger/Richards - “Back Street Girl”

Annað persónuleikapróf

miðvikudaginn, mars 29th, 2006

INTP - “Architect”. Greatest precision in thought and language. Can readily discern contradictions and inconsistencies. The world exists primarily to be understood. 3.3% of total population.
Free Jung Personality Test (similar to Myers-Briggs/MBTI)
Þegar ég fékk niðurstöðurnar mundi ég skyndilega eftir því að ég hafði tekið annað svipað próf, reyndar á öðrum vef, og fengið nákvæmlega sömu niðurstöðu.
Þó er eitt sem fær mig til að efast um niðurstöðu þessa prófs, eða ef til vill færa mér ný sannindi um að glíkur sækir glíkan heim: INTP týpan er í yfirgnæfandi meirihluta á IRC-rásinni sem ég stunda, en það er rásin #NIceland á IRCNet, sem er aðallega sótt af íslenskum Linux- og Unixnördum sem kunna stafsetningu (fólk sem kann ekki stafsetningu er yfirleitt illa séð þar).

Afi

miðvikudaginn, mars 29th, 2006

Þegar ég var lítill átti ég tvo afa. Nú á ég bara einn. Ég hafði mikið meira af hinum afa mínum að segja í þá daga, ég var skírður í höfuðið á honum og ég gat alltaf heimsótt hann. Ég var aldrei viss um hvar ég hefði hinn, hann var mjög mikill húmoristi og var alltaf í heimsókn hjá ömmu, en einhvern veginn skildist mér að hann ætti konu og börn annars staðar. Svo löngu síðar þegar amma dó fékk ég að fara í heimsókn til hans. Nú er hin konan hans dáin líka. Ég fer í heimsókn til hans og les fyrir hann. Svo tölum við um stjórnmál. Hann er ennþá mikill húmoristi, og kommúnisti líka. Samt finnst honum hálfpartinn vænt um Davíð. Ég held að það sé vegna ættrækni.

Skegg eða ekki skegg?

þriðjudaginn, mars 28th, 2006

Helsta fórn til hégómleikans sem ég stunda er að raka mig á morgnana. Hins vegar finnst mér það afspyrnuleiðinlegt en ég bara þoli ekki að sjá sjálfan mig með skeggbrodda. Skegg er í lagi … þannig að spurningin er: ætti ég að safna skeggi aftur? Til að auðvelda ykkur valið eru hér tvær myndir, önnur þar sem ég er skeggjaður á fertugsaldri, en á hinni er ég skegglaus á fimmtugsaldri.

Ég er farinn út að hjóla

sunnudaginn, mars 26th, 2006

Framhjá Nauthól. bakvið Nesti, kringum Digranesið, upp Kópavogsdal, framhjá Seljahverfi, gegnum Kórahverfi, að Vatnsenda, framhjá Þingnesi, kringum Elliðavatn, niður að brú, upp að Rauðavatni, niður í Grafarvog, undir Gullinbrú, gegnum Bryggjuhverfi, inn Elliðaárvog, inn í Laugardal, vestur Sæbrautina, út á Granda, upp að Gróttu, kringum Seltjarnarnes, meðfram Ægisíðu, inn Skerjafjörð og aftur að Nauthól.

Timeo hominem unius libri

sunnudaginn, mars 26th, 2006

Nú eru næstum 20 ár sem ég hef getað sagt að Skoska sinfónían sé mitt eftirlætistónverk.

Stolið af Bloggi dauðans

laugardaginn, mars 25th, 2006

Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Það er sett hér til þess að unnt sé að lesa það af skjá. Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við höfund eða samningur við samtök rétthafa höfundaréttar. Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.