Ég er farinn út að hjóla
Framhjá Nauthól. bakvið Nesti, kringum Digranesið, upp Kópavogsdal, framhjá Seljahverfi, gegnum Kórahverfi, að Vatnsenda, framhjá Þingnesi, kringum Elliðavatn, niður að brú, upp að Rauðavatni, niður í Grafarvog, undir Gullinbrú, gegnum Bryggjuhverfi, inn Elliðaárvog, inn í Laugardal, vestur Sæbrautina, út á Granda, upp að Gróttu, kringum Seltjarnarnes, meðfram Ægisíðu, inn Skerjafjörð og aftur að Nauthól.
26. mars 2006 klukkan 17:36
Þetta var hressandi. Ég hætti samt við að fara vesturbæinn og beygði þess í stað upp Nóatúnið og fór yfir Klambratúnið. En mikið var það hart að hjóla Þingnesið, það var allt hálffrosið drullusvað og hörð gola að norðan og ég berhöfðaður.
26. mars 2006 klukkan 18:16
Var minn í nettri maníu?
26. mars 2006 klukkan 18:20
Ég geng út frá því að Brynhildur hafi ekki verið með í þessum túr!
26. mars 2006 klukkan 18:34
Nei, ég er svona allan tímann.
Nei, ég færi ekki með hana þessa leið. En hún hefur farið hana upp hálfan Kópavogsdalinn og beygt þar inn að Smáralind og tók hana bara rétt rúman hálftíma sex ára gamla.
26. mars 2006 klukkan 20:09
varstu ekki með hjálm? ussussusss
26. mars 2006 klukkan 22:06
Ég tók þessu bara rólega, enda var ég á þriðja tíma á leiðinni. Hefði ég verið að flýta mér hefði ég tekið hjáliminn minn með.
2. apríl 2006 klukkan 22:00
illa farinn hjálmur.. alltaf dettandi?:o
2. apríl 2006 klukkan 22:59
Bara einu sinni. Ég hafði farið gífurlega illa að ráði mínu þá. Ég upplifði það að láta hjúkku skrúbba steina upp úr fleiðruðum hnjám mínum.
Það sem gerðist var svona risa-stökk-stunt sem misheppnaðist.