Afi

Þegar ég var lítill átti ég tvo afa. Nú á ég bara einn. Ég hafði mikið meira af hinum afa mínum að segja í þá daga, ég var skírður í höfuðið á honum og ég gat alltaf heimsótt hann. Ég var aldrei viss um hvar ég hefði hinn, hann var mjög mikill húmoristi og var alltaf í heimsókn hjá ömmu, en einhvern veginn skildist mér að hann ætti konu og börn annars staðar. Svo löngu síðar þegar amma dó fékk ég að fara í heimsókn til hans. Nú er hin konan hans dáin líka. Ég fer í heimsókn til hans og les fyrir hann. Svo tölum við um stjórnmál. Hann er ennþá mikill húmoristi, og kommúnisti líka. Samt finnst honum hálfpartinn vænt um Davíð. Ég held að það sé vegna ættrækni.

4 svör við færslunni “Afi”

  1. Þá sagði Lindablinda:

    Ég átti aldrei ömu og afa, en ég er búin ða ættleiða einn á netinu.
    Allir sem hafa átt ömmu og afa eru heppnir.

  2. Þá sagði Elías:

    Ég átti meira að segja eitt sinn langafa. Hann var Mýramaður og járnsmiður. Ég man eftir neftóbakslyktinni hjá honum og gömlu glæpasögutímaritunum sem ég las hjá honum. Hann var mesti rennismiður sinnar samtíðar.
    Í fyrra flutti maður í kjallarann í húsinu mínu. Ég varð forvitinn og fletti honum upp í Íslendingabók. Einhvern veginn varð ég ekki of undrandi þegar ég komst að því að hann væri sonarsonarsonur afa langa.

    Hér eru langafi og langamma. Myndin var tekin í Winnipeg árið 1914.

    Þetta er smækkuð mynd. Upprunalega myndin er svo skýr að það er hægt að sjá mynstrið í lithimnunni á honum.

  3. Þá sagði Erla:

    Ég á Ömmu, Ömmufrænku, ÖmmuJó og fjóra-fimm afa, það er smekksatriði…

  4. Þá sagði Sóley:

    ég hef aldrei skilið þetta ömmufrænku kjaftæði..
    ég veit ekki en mér finnst afi birgir miklu meiri afi minn en afi ágúst.. þótt hann sé nú blóðlega meiri afi minn.. ef út í það er farið.. kannski bara því ég hitti birgir oftar.. við erum líka buddies.. gaman að spjalla við hann

    Afa stefán líka.. við eigum það til að detta inn í hressar samræður:)

Leggðu orð í belg