Skrýtinn heimur
laugardaginn, mars 25th, 2006Hvað með að senda þá inn á almenningsklósett til að handtaka fólk fyrir að skíta og míga á almannafæri?
Hvað með að senda þá inn á almenningsklósett til að handtaka fólk fyrir að skíta og míga á almannafæri?
Af hverju eru vinstrimennirnir á kaninka.net allir undir bláum fána? Sjálfgefinn litur Wordpress bloggkerfisins er blár, en því er auðvelt að breyta. Allt sem maður þarf er svona skrá …

Minn verður reyndar svartur, ekki rauður. Hann heitir Höfner Shorty og kostaði 69 bresk pund.
Hvernig er það, vissu ekki allir að “Mens Sana in Corpore Sano” er EKKI Latneskt máltæki, heldur orð tekin út úr samhengi úr tíundu Satíru Júvenals? “Orandum est ut sit mens sana in corpore sano” kvað skáldið, “Það væri óskandi að sálin væri heilbrigð í hraustum líkama.”
Ég segi hér með hugtökunum “mid-life crisis” og “gráa fiðringnum” stríð á hendur. Þetta er ekkert annað en sjúkdómsvæðing lífsgleðinnar, uppfundið af uppþornuðum og öfundsjúkum fýlupokum.
Við erum ólíkir á margan hátt, ég spila t.d. á gítar mér til hugarhægðar en ekki fiðlu. Ég nota heldur ekki kókaín. Ég er líka fjölskyldumaður, ólíkt honum, þótt hæfileikar mínir til þess hafa reyndar margsinnis verið dregnir í efa.
Allt brytjað niður í smátt og hrært saman. Nammi.