Andlátsfregn
sunnudaginn, apríl 30th, 2006Þar sem ég hef ekkert séð um þetta annars staðar en á Daily Kos, ætla ég að tilkynna þetta hér: John Kenneth Galbraith lést á sjúkrahúsi í Cambridge, Massachusetts í gær. Hann var 97 ára að aldri.
Þar sem ég hef ekkert séð um þetta annars staðar en á Daily Kos, ætla ég að tilkynna þetta hér: John Kenneth Galbraith lést á sjúkrahúsi í Cambridge, Massachusetts í gær. Hann var 97 ára að aldri.
Allir þessir bloggleikir hafa bara eitt markmið: að komast yfir þínar persónulegu upplýsingar: hver ertu? hvað gerirðu? hversu gamall ertu? hver er afmælisdagur þinn? kennitala? hvað finnst þér sniðugt? borgar það sig fyrir okkur og okkar kúnna að stíla inn á þig og fólk eins og þig?
Einu sinni setti ég upp vefþjón sem þóttist vera doubleclick.com. Upplýsingarnar sem komu í loggana á þeim vefþjón hræddu mig, þótt þær kæmu einungis frá mér og engum öðrum.
Venjulega kem ég til rakarans með mynd af Jóni Ásgeiri og segi “klipptu mig svona”. Reyndar held ég að síðast hafi ég óvart verið með mynd af Karli Ágústi Úlfssyni í gervi Jóns Ásgeirs, en hver getur svo sem láð mér það?
Vinnufélagi minn er í “víkingafélagi”. Hann spurði mig hvort ég vildi ekki ganga í félagið. Ég svaraði því til að ég væri þegar ninja en hefði hugleitt að gerast sjóræningi.
Þetta er alveg satt. Ég þeysist um að næturþeli, svartklæddur frá hvirfli til ilja, ríðandi á álfák.
Vorið er svo þykkt í loftinu að maður finnur líkamlega nærveru þess.
Þegar ég var tíu eða ellefu ára í Álftamýrarskóla skrifaði ég ritgerð um heiminn og hvernig hann yrði þegar ég væri orðinn stór. Þetta hefur verið á því herrans ári 1974. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að kennarinn skildi ekki ritgerðina, að minnsta kosti fékk ég engar athugasemdir eða spurningar, bara einkunn án útskýringa.
Í ritgerðinni hélt ég því fram að helsta raforkulind okkar yrði vetnissamruni og að segulhraðlestir yrðu á hverju strái. Þetta yrði bara á næstu 20 árum. Ég sé nú að ég hef verið pínulítið of bjartsýnn þá. En bara pínulítið.
Það er kominn tími til að Íslendingar smíði sínar eigin segulhraðlestir.
Til hvers þarf flugvöll í Reykjavík þegar maður kemst til Keflavíkur á 15 mínútum? Með segulhraðlest frá Mjódd til Keflavíkur verður fljótlegra að fara frá Breiðholti til Keflavíkur en frá Breiðholti niður í Vatnsmýri.
Og þetta er ekkert mál. Þetta borgar sig margfalt upp á örfáum árum. Svo þurfum við segulhraðlest kringum landið og eina í beina línu til Akureyrar. Þetta er í rauninni nauðsynlegt til að samgöngur leggist ekki af eftir nokkur ár þegar olían klárast.