Segulhraðlestin
Þegar ég var tíu eða ellefu ára í Álftamýrarskóla skrifaði ég ritgerð um heiminn og hvernig hann yrði þegar ég væri orðinn stór. Þetta hefur verið á því herrans ári 1974. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að kennarinn skildi ekki ritgerðina, að minnsta kosti fékk ég engar athugasemdir eða spurningar, bara einkunn án útskýringa.
Í ritgerðinni hélt ég því fram að helsta raforkulind okkar yrði vetnissamruni og að segulhraðlestir yrðu á hverju strái. Þetta yrði bara á næstu 20 árum. Ég sé nú að ég hef verið pínulítið of bjartsýnn þá. En bara pínulítið.
Það er kominn tími til að Íslendingar smíði sínar eigin segulhraðlestir.
Til hvers þarf flugvöll í Reykjavík þegar maður kemst til Keflavíkur á 15 mínútum? Með segulhraðlest frá Mjódd til Keflavíkur verður fljótlegra að fara frá Breiðholti til Keflavíkur en frá Breiðholti niður í Vatnsmýri.
Og þetta er ekkert mál. Þetta borgar sig margfalt upp á örfáum árum. Svo þurfum við segulhraðlest kringum landið og eina í beina línu til Akureyrar. Þetta er í rauninni nauðsynlegt til að samgöngur leggist ekki af eftir nokkur ár þegar olían klárast.
19. apríl 2006 klukkan 19:07
merkilegt ef satt er. veit einhver af þessu annar en þú? (og ég, var að lesa um segulhraðlestir á blogginu þínu)
21. apríl 2006 klukkan 12:29
Ja, ég hafði haldið að ef 11 ára krakki í Álftamýrarskóla vissi þetta árið 1974, þá væri þetta á flestra vitorði, en svo virðist ekki.
21. apríl 2006 klukkan 13:44
ekkert er sjálfgefið í þessu lífi
ef þér er þetta hjartans mál, verðurðu að vinna í því að afla segulhraðlestum brautargengi
I think I can, I think I can…..tjútjú
(var þetta ekki gáfulegt komment?)
21. apríl 2006 klukkan 13:47
Thomas the Maglev engine?
24. apríl 2006 klukkan 18:33
mun vera flugvöllur í keflavík þegar olían er búin?
25. apríl 2006 klukkan 9:00
Góður punktur.
Reyndar er líka á áætlun að hefja millilandaflugferðir með risastóru Zeppelin-loftskipi knúnu áfram af lýsi.
25. apríl 2006 klukkan 11:28
Já, komdu með segulhraðlest milli Akureyrar og Reykjavíkur og ég skal ekki segja orð þótt flugvöllurinn í Reykjavík verði lagður niður eða fluttur til Keflavíkur eða eitthvað út í hafsauga. En það er fjandi hart að þurfa að mæta á fundi í Reykjavík og það tekur alltaf heilan vinnudag í hvert skipti.
27. apríl 2006 klukkan 15:48
Ég skal verða fyrstur til þess að kaupa mér miða með Zeppilinlýsisfarinu! Skil ekki afhverju hætt var við framleiðslu þessara frábæru flugtækja!
27. apríl 2006 klukkan 18:06
Það var eiginlega bara vegna þess að almenningur missti trú á þeim eftir Hindenburg-slysið. Helíum-fyllt loftskip (en helíum brennur ekki) voru þá þegar komin, en Bandaríkjamenn einokuðu helíumið svo Þjóðverjar urðu að notast við vetnið í staðinn. Stjórn nasista hafði enga tiltrú á þeim, enda eru þeir frekar gagnslausir í hernaði.