Þetta er allt eitt samsæri
Allir þessir bloggleikir hafa bara eitt markmið: að komast yfir þínar persónulegu upplýsingar: hver ertu? hvað gerirðu? hversu gamall ertu? hver er afmælisdagur þinn? kennitala? hvað finnst þér sniðugt? borgar það sig fyrir okkur og okkar kúnna að stíla inn á þig og fólk eins og þig?
Einu sinni setti ég upp vefþjón sem þóttist vera doubleclick.com. Upplýsingarnar sem komu í loggana á þeim vefþjón hræddu mig, þótt þær kæmu einungis frá mér og engum öðrum.
29. apríl 2006 klukkan 9:44
jamm, ég er sammála.
þetta er bara enn eitt upplýsinga-gathering trikkið, alveg eins og með “ef þú forwardar ekki þessu emaili..” sem er ekkert annað en email harvesting
29. apríl 2006 klukkan 13:15
Nákvæmlega.
29. apríl 2006 klukkan 18:20
Það þarf líka að fara að kenna fólki að nota Bcc fídusinn í tölvupósti. Það bara gengur ekki að auglýsa netföng allra til allra. Þegar einn þeirra fær svo vírus, þá áframsendist hann til allra á listanum. Og höfunda óværunnar, sem eru oftar en ekki í samslætti með sendendum ruslpósts.
29. apríl 2006 klukkan 20:15
taka bara Cc út og inn með Bcc alfarið
3. maí 2006 klukkan 3:53
Ágætis ábendingar hér. Uppá síðkastið hringja alltaf hjá mér viðvörunarbjöllur þegar ég er beðinn um að taka þátt í einhverju og það krefst skráningar. Nú er best að tengja bjöllurnar líka við það að þurfa að senda póst á framandi póstföng.
3. maí 2006 klukkan 10:17
Dæmi um hvað gerist:
Notandi sendir öllum félögunum tölvupóst. Öll netföngin eru í To: eða Cc: línunni. Allir viðtakendur fá póstinn og hann hvílir þar til eilífðarnóns í einhverju pósthólfi í Outlook viðtandendanna. Svo fær einn vírus. Það fyrsta sem vírusinn gerir er að skanna pósthólfið eftir netföngum og finnur þar netföng allra félaganna. Síðan sendir hann þeim öllum eintak af veirunni. Höfundur veirunnar fær líka eintak. Þegar vírusinn er búinn að dreifa sér leggst hann til hvíldar og bíður eftir skipunum að utan. Stundum tengist hann vefþjóni höfundar síns til að spyrja hvað hann eigi að gera. Sú aðferð er algeng í dag því æ fleiri vélar eru bak við eldvegg og því ekki hægt að tengjast þeim að utan. Veiruhöfundar selja síðan yfirráð yfir sýktum tölvum. Kaupendur eru dreifendur ruslpósts, barnakláms og tölvuþrjótar sem stunda fjárkúgun með hótunum um að drekkja gagnaveitum.
Ég lít svo á að það sé aðeins einn sökudólgur í málinu: Microsoft.
Þessi glæpasamtök, sem frá upphafi hafa gert allt sem þeir geta til að takmarka eðlilega þróun tölvutækninnar með því að læða að markaðnum upplognum “stöðlum” sem eru í raun hið gagnstæða, eða sérhannaðar, leynilegar aðferðir til að búa til tilbúna ósamhæfni milli kerfa, hafa með ótrúlegum fávitaskap eyðilagt allt sem þau hafa komið nálægt með kerfislægum öryggisholum sem ekki er hægt að laga nema fjarlægja alla meinsemdina.