Klippingin

Venjulega kem ég til rakarans með mynd af Jóni Ásgeiri og segi “klipptu mig svona”. Reyndar held ég að síðast hafi ég óvart verið með mynd af Karli Ágústi Úlfssyni í gervi Jóns Ásgeirs, en hver getur svo sem láð mér það?

Eitt svar við færslunni “Klippingin”

  1. Þá sagði Þórhallur:

    Persónulega finnst mér Karl Ágúst sem Jón Á með flottari klippingu - ef hægt er að nota orðið ,,flott” og ,,klipping” yfir það sem í fjarska líkist mest dauðri rottu en er við nánari eftirgrenslan hár!

Leggðu orð í belg