Ósiðir mörlandans, 1. kafli
þriðjudaginn, apríl 18th, 2006Einn er sá ósiður íslendinga sem fer ósegjanlega mikið í taugarnar á mér, en það er hvernig þeir standa hlið við hlið í rennistiga. Eins og allir þeir sem til útlanda hafa komið hafa tekið eftir, þá gerir maður ekki svoleiðis lagað. Fólk stendur í einfaldri röð hægra megin svo þeir sem vilja flýta sér geti hindrunarlaust gengið eða hlaupið um stigann. Annars væri lítið gagn í svona stiga, því hann hreyfist mikið hægar en maður gæti gengið sjálfur, ekki satt?
Ég skora á fólk að reyna að standa vitlausu megin í rennistiga í London, t.d. á Holborn lestarstöðinni. Venjan er að fyrsti maður sem kemur að sveitalúða sem stendur vitlausum megin lemji hann eða sparki honum burt svo heiðvirt fólk geti komist leiðar sinnar.
