Archive for maí, 2006

Er Vatnsmýrin að deyja?

fimmtudaginn, maí 25th, 2006

Ég hef þekkt Vatnsmýrina lengi, ég bjó eitt sinn mjög nálægt henni, á Nýja-Garði, ég hef synt í Vatnsmýrartjörn og hef labbað eða hjólað þar framhjá á hverjum einasta degi í um það bil 10 ár. Þess vegna tek ég eftir breytingum þar.

Þetta vor er alveg sérstakt. Vatnsmýrin virðist vera dáin. Það er ekkert kríuvarp, hvorki þar né við litlu tjörnina. Gæsa- og andavarpið í Vatnsmýrinni er ekki þarna. Það eru bara ein og ein gæs og önd á stangli, en hins vegar gríðarlega mikið af veiðibjöllu, sennilega vegna þess að kríuna vantar.

Hver er ábyrgur fyrir þessu? Borgarfulltrúar með héraheila sem klesstu hraðbraut inn í miðja borg?

Sjöundi áratugurinn

fimmtudaginn, maí 25th, 2006

Þótt ég sé fæddur árið 1963 er svo undarlegt með mig að ég hef elskað áratuginn sem ég fæddist í allar götur síðan.

Ég elska allt frá sjöunda áratugnum, “sixtís”, en þó umfram allt tónlistina. Alveg frá upphafi áratugarins og til loka hans.

Ég lærði að lesa þegar ég var fjögurra ára og varð strax mjög hraðlæs og las bækur, tímarit og blöð af mikilli áfergju. Sjónvarp var til á mínu heimili frá því áður en Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Móðir mín hlustaði oft á útvarp á daginn, á kvöldin var horft á sjónvarp, leiknar hljómplötur eða pabbi spilaði á trompetinn sinn. Yfirleitt var amk tvennt af þessu í gangi.

Einhvern veginn síaðist andblær sjöunda áratugarins inn í barnssálina og hefur æ síðan búið þar eins og minning um glataða paradís.

Google er málið!

mánudaginn, maí 22nd, 2006

Google virðist vita hver næsti borgarstjóri er …

Hver er á myndinni?

miðvikudaginn, maí 17th, 2006

Er það sem mér sýnist, er eins og hann breytist um stundarkorn í Alfreð Þorsteinsson?

Björn Glanni

Something in the wind has learned my name

þriðjudaginn, maí 16th, 2006

Keilir, himinn og haf

One of these mornings you’re gonna wake up singing, then you’re gonna spread your wings and take to the sky.

Í dag er sá morgunn.

Til hamingju með afmælið

sunnudaginn, maí 7th, 2006

Afi minn, Stefán Bjarnason verkamaður, er 96 ára í dag.

Stjórnmál

sunnudaginn, maí 7th, 2006

Núna eru bandarískir íhaldsmenn að segja að Bush sé ekki sannur íhaldsmaður og að hann hafi svikið íhaldsstefnuna og það sé ekki hægt að taka gerðir hans sem dæmi um hina sönnu íhaldsstefnu. Er þetta ekki farið að hljóma kunnuglega?

Ég tek eftir því að ungt fólk  gagnrýnir vinstriflokkana helst fyrir forræðishyggju. Ég skil það vel. Flestir stjórnmálamenn virðast vera illa haldnir forræðishyggju, en sá er munurinn að vinstrimenn eru haldnir forræðishyggju þegar líf og heilsa borgaranna er í húfi, en hægrimenn þegar gróði þeirra og einkavina þeirra er í húfi.

Ég tel að harmleikur vinstrimanna felist helst í því að helstu útfærslur sósíalisma á síðustu öld skorti góðar stjórnskipunarréttarfarslegar undirstöður. Stjórnarskrár kommúnistaríkja voru gallaðar, þar sem þær leituðust ekki við að tryggja rétt borgaranna með því að takmarka völd ríkisvaldsins. Það var hins vegar ekki innbyggður galli í sósíalismanum í sjálfu sér, heldur bara handvömm og fáfræði höfunda viðkomandi stjórnarskráa.