Stjórnmál

Núna eru bandarískir íhaldsmenn að segja að Bush sé ekki sannur íhaldsmaður og að hann hafi svikið íhaldsstefnuna og það sé ekki hægt að taka gerðir hans sem dæmi um hina sönnu íhaldsstefnu. Er þetta ekki farið að hljóma kunnuglega?

Ég tek eftir því að ungt fólk  gagnrýnir vinstriflokkana helst fyrir forræðishyggju. Ég skil það vel. Flestir stjórnmálamenn virðast vera illa haldnir forræðishyggju, en sá er munurinn að vinstrimenn eru haldnir forræðishyggju þegar líf og heilsa borgaranna er í húfi, en hægrimenn þegar gróði þeirra og einkavina þeirra er í húfi.

Ég tel að harmleikur vinstrimanna felist helst í því að helstu útfærslur sósíalisma á síðustu öld skorti góðar stjórnskipunarréttarfarslegar undirstöður. Stjórnarskrár kommúnistaríkja voru gallaðar, þar sem þær leituðust ekki við að tryggja rétt borgaranna með því að takmarka völd ríkisvaldsins. Það var hins vegar ekki innbyggður galli í sósíalismanum í sjálfu sér, heldur bara handvömm og fáfræði höfunda viðkomandi stjórnarskráa.

2 svör við færslunni “Stjórnmál”

  1. Þá sagði útifrík:

    Eða tilhneyging fólks til persónudýrkunar?

  2. Þá sagði Elías:

    Já, það er líka hluti af því, en kannski minni en fólk heldur. Auðvitað á fólk að vera gagnrýnið á þá sem það velur sem stjórnendur sína og aldrei gefa þeim frjálsar hendur til að gera hvað sem er. Hins vegar er aldrei hægt að afskrifa siðferðislegt atgerfi, eins og sumar kreddur í bæði stjórnunarfræði og stjórnmálafræði virðast gefa í skyn. Á vettvangi tölvuöryggismála hefur fólk verið að ræða þetta; sumir, undir áhrifum “nútíma stjórnunarhátta” vilja kynna til sögunnar óteljandi staðlaða verkferla til að hindra misnotkun, en þessi aðferð hefur aldrei gefið jafn góða raun í praxís og í þeóríunni. Sama má sjá í bandaríkjastjórn um þessar mundir, fasískt alræðisveldi er að rísa þar vestanhafs án þess að stjórnarskráin megni að sporna við.
    Ég neita því að ástæða þess að ég vil frekar Svandísi sem borgarstjóra en Dag, Vilhjálm eða Björn Inga sé persónudýrkun; ég tel einfaldlega að hún sé betra efni í borgarstjóra. Hins vegar verð ég að geta þess að ég þekki hana persónulega, en hina einungis gegnum fregnir úr fjölmiðlum. Þar kemur á móti að ég veit að hún verður góður borgarstjóri, en ég er bara alls ekki viss um hina.

Leggðu orð í belg