Til hamingju með afmælið

Afi minn, Stefán Bjarnason verkamaður, er 96 ára í dag.

16 svör við færslunni “Til hamingju með afmælið”

  1. Þá sagði baun:

    innilega til hamingju með afa þinn Elías!

  2. Þá sagði Gestur:

    Hamingjuóskir á afmælisdegi afa þíns eldhressa!

  3. Þá sagði útifrík:

    Vaá, það er hár aldur. Til hamingju með afann :)

  4. Þá sagði Harpa:

    Til hamingju með afa þinn. Vona að hann sé við góða heilsu.

  5. Þá sagði Harpa:

    Hurrðu Elías, ég er að spöglera… Eftir hvaða reglu fer tenglalistinn þinn? Maður verður alveg sjóveikur á að fylgjast með breytingunum á honum.

  6. Þá sagði Elías:

    Hann drakk mig undir borðið.

    Da da da.

  7. Þá sagði Elías:

    Reglan heitir /dev/urandom

  8. Þá sagði Elías:

    Móðuramma hans varð 98 ára og fæddi 20 börn. móðir hennar og móðir hennar voru svipaðar. Einhver þeirra giftist Páli Melsteð sem kvæðið “augun mín og augun þín” var ort til. Í breinan kvenlegg voru þær til Ragnheiðar Eiríksdóttur sem móðuramma mín var líka.

  9. Þá sagði Elías:

    Davíð Oddsson og Snæfríður Íslandssól eru i sama beina kvenlegg.

  10. Þá sagði eddi:

    til hamingju með það gamli

  11. Þá sagði Hugi:

    Til hamingju með þann gamla Elías - þú átt greinilega eftir að verða ævaforn.
    Áhugavert að heyra þetta með Vísur Vatnsenda-Rósu, þetta er eitt af mínum uppáhalds kvæðum (og lögum).

  12. Þá sagði Elías:

    Það fer reyndar tvennum sögum af því hvort Páll hafi í raun verið ástin í lífi Rósu.

  13. Þá sagði útifrík:

    Ég er mikið búin að spá í þetta í gegnum tíðina. Og þykist vera búin að komast að þeirri niðurstöðu að konan sem orti þetta hafi verið með karlmann í huga sem hún mátti ekki/gat ekki fengið, ekki opinberlega. Og þarafleiðandi er mjög ólíklegt að nokkur maður viti nokkuð um til hvers ljóðið var ort. En hef nákvæmlega ekkert fyrir mér í því annað en innihald kvæðisins. Hjálmar Ragnarsson var nú aldeilis búinn að láta okkur syngja þetta með innlifun í Háskólakórnum í gamla daga, þannig að maður (kona) er í æfingu með að lifa sig inn í hugarheim skáldsins. :)

  14. Þá sagði Elías:

    Það er reyndar talið að erindin í “Vísum Vatnsenda-Rósu” séu ort við mörg mismunandi tækifæri og að helmingur þeirra sé alls ekki eftir Rósu.

  15. Þá sagði Elías:

    Já, varðandi heilsuna, þá er hún eftir atvikum góð; hann er enn að jafna sig eftir mjaðmaruppskurð frá því fyrir einum og hálfum mánuði síðan. Hann gekk reyndar nokkrum tímum eftir að hann var skorinn, en hann á samt nokkrar vikur í að hafa fulla fótaferð. Hann er farinn að sakna þess að geta ekki labbað á barinn lengur, en hann hefur verið fastagestur á Næsta Bar undanfarin ár, aðallega þá í slagtogi við son sinn, Ragnar jarðskjálftafræðing.

  16. Þá sagði Lindablinda:

    Ætlar hann að verða 96 þar til hann verður 100?? :-)

Leggðu orð í belg