Er Vatnsmýrin að deyja?
Ég hef þekkt Vatnsmýrina lengi, ég bjó eitt sinn mjög nálægt henni, á Nýja-Garði, ég hef synt í Vatnsmýrartjörn og hef labbað eða hjólað þar framhjá á hverjum einasta degi í um það bil 10 ár. Þess vegna tek ég eftir breytingum þar.
Þetta vor er alveg sérstakt. Vatnsmýrin virðist vera dáin. Það er ekkert kríuvarp, hvorki þar né við litlu tjörnina. Gæsa- og andavarpið í Vatnsmýrinni er ekki þarna. Það eru bara ein og ein gæs og önd á stangli, en hins vegar gríðarlega mikið af veiðibjöllu, sennilega vegna þess að kríuna vantar.
Hver er ábyrgur fyrir þessu? Borgarfulltrúar með héraheila sem klesstu hraðbraut inn í miðja borg?
27. maí 2006 klukkan 21:06
Þá er bara að vona að fuglarnir átti sig á þessu aftur og komi næsta vor. En því miður er líklegast að mennirnir venjist fuglaleysinu bara og haldi að þetta eigi að vera svona.
28. maí 2006 klukkan 21:26
Ég hef ekki tekið eftir veiðibjöllu þarna. Er þetta ekki bara sílamáfur?
15. júní 2006 klukkan 19:10
hvað er þetta Elías - ertu alveg hættur að blogga???
17. júní 2006 klukkan 22:46
Nei, ég var bara í smá fríi.
27. júní 2006 klukkan 16:08
Nei, það er ekki ein einasta veiðibjalla, enda er hún orðin mjög sjaldgæf á Íslandi. Bara sílamáfur.
Kríufæðin stafar ekki af hraðbrautinni heldur af bresti í stofni sandsíla sem hefur líka haft gríðarlega slæm áhrif á stofn annarra sjófugla eins og lunda.
27. júní 2006 klukkan 20:37
Eru sandsíli í tjörninni, eða fara kríurnar á haf út að sækja þau?
27. júní 2006 klukkan 20:39
Já, ég þekki ekki þessar mávategundir í sundur. Kannski hef ég aldrei séð veiðibjöllu.