Archive for júní, 2006

Söngvarar og söngkonur

miðvikudaginn, júní 28th, 2006

Eftirlætissöngkonur mínar, í tilviljunarkenndri röð:

  • Mama Cass
  • Janis Joplin
  • Björk
  • Dolores O’Riordan
  • Eivør Pálsdóttir

Eftirlætissöngvarar mínir, líka í engri sérstakri röð:

  • John Lennon
  • Mick Jagger
  • Colin Blunstone
  • David Bowie
  • Jim Morrison

Mesti snillingurinn meðal söngkvennanna er auðvitað Björk. Það er erfitt að dæma hvort hún sé meiri tónskáld eða söngkona, en í höfundarverki hennar eru þessir þættir næstum órjúfanlegir.

Annar óviðjafnanlegur snillingur var Janis Joplin. Snilld hennar er kannski ómælanlegri en nokkurrar annarar, enda var hún náttúrubarn sem söng frá innstu hjartarótum á svo átakanlegan hátt að maður stendur orðlaus og hvumsa eftir, sbr þessa útgáfu hennar á Ball and Chain á Monterey Pop tónlistarhátíðinni í júnímánuði árið 1967.

Ef sorg, mæða og harmkvæli koma fram í söngröddum sumra, eins og hjá Joplin og Morrison, þá eru aðrar raddir eins og ferskur andvari, fullur af gleði og bjartsýni. Þannig var Mama Cass. Annars sést hún líka í myndbandinu með Janis Joplin að ofan; hún situr meðal áhorfenda og sést hvísla “wow!”.

Af söngvurunum er einn sem hafði ekki yfir neitt sérstakri tækni eða getu að búa, en það var Jim Morrison heitinn. Samt var hann frábær söngvari, af svipuðum ástæðum og Janis;  hann var blúsari frá hjartanu. Hann var líka töffari, en það skiptir minna máli núna.

Hver er Colin Blunstone? munu eflaust margir spyrja. Hann var söngvari bresku hljómsveitarinnar The Zombies, sem var starfrækt frá árunum 1962 til 1967. Síðar söng hann með The Alan Parsons Project, m.a. lagið “Old and Wise” frá árinu 1982. Söngstíll hans er óvenjulegur, hann hafði þýða baritónrödd og söng svo til einvörðungu höfuðsöng á efri mörkum raddsviðsins.

The Zombies voru ótrúlega góð hljómsveit sem náðu því miður ekki þeim vinsældum sem þeim bar. Vinsælasta lag þeirra, Time of the Season, sló í gegn næstum tveimur árum eftir að hljómsveitin hætti. Sem dæmi um hversu gríðarlega langt á undan sinni samtíð þeir voru, er hér næstum óþekkt lag frá þeim frá árinu 1964 sem heitir Walking in the Sun (ég vona að Decca verði ekki brjálaðir) . Er þetta 1964 eða 1974?

Undarleg þróun

miðvikudaginn, júní 28th, 2006

Ég var að komast að einu um sjálfan mig: ég er hættur að horfa á sjónvarp. Samt er þetta ekki eins og hjá sumum kunningjum mínum, að ég sé farinn að horfa á kvikmyndir og sjónvarpsþætti á tölvunni sem ég hleð niður af netinu. Nei, ég er alfarið hættur að horfa á eitt eða neitt. Ég hlusta á tónlist, spila á gítar, hljómborð eða munnhörpu, les greinar, bækur, fréttir og hvaðeina annað af netinu og svo spjalla við fólk á IRC og MSN, aðallega þó IRC, þar sem þar getur maður hitt fólk sem maður þekkti ekki áður og spjallað við ótal manns samtímis.

Eins og ég minntist á í fyrri færslu, þá var ég að sjá Orkuveituauglýsinguna. Ég hafði heyrt fólk tala um hana og séð ótal marga minnast á hana, en hafði aldrei séð hana sjálfur. Ég þurfti að fara á vef OR til að sjá hana.

Ég fer heldur ekki mikið í bíó, ég hætti að mestu að fara í bíó fyrir uþb 15 árum síðan. Mér finnst það of mikið vesen. Mér finnst ég ekki missa af neinu að sjá myndir af 10 tommu skjá 5 metra í burtu. Konan mín minnti mig á það um daginn að ég hef bara einu sinni farið með henni í bíó. Þó hef ég farið oftar með yngri dóttur minni, eða 3 eða 4 sinnum.

Ég held stundum að ef ég hefði verið uppi á umbrotatímum kirkjunnar hefði ég gerst myndabrjótur. Yfirleitt finnst mér eitt orð segja meira en þúsund myndir.

Orkuveituauglýsingin

miðvikudaginn, júní 28th, 2006

Ég var að skoða þessa margumræddu orkuveituauglýsingu og ég verð að segja að ég vorkenni börnum sem fá svona einfeldningslegar skýringar á hlutunum.

Annars get ég trútt um talað, börnin mín sofna þegar ég útskýri hlutina fyrir þeim.

Draumur um bankarán

mánudaginn, júní 26th, 2006

Mig dreymdi í nótt að ég hefði gerst bankaræningi.

Ég og einhver annar, ég man ekki hver (það var einhver með mér, einhver nákominn eða góður vinur eða vinkona, ég bara man ekki eftir að hafa séð framan í hann eða hana) vorum að ræna banka. Við höfðum prentað út einhverja hótun sem við framvísuðum í banka. Þetta tók langan tíma, við vorum með allan bankann í gíslingu, en þegar leikurinn stóð sem hæst hvarf ég út um bakdyrnar með gríðarlega fjármuni í C4 umslagi. Svo fór ég til vinnu næsta dag eins og ekkert hefði í skorist.

Allt gekk sinn vanagang þar til einn morguninn sá ég hótunarbréfið á skrifborðinu mínu. Ég lét sem ekkert væri. Ég fór að lesa það, og fannst það ansi súrrealískt, það var texti sem hefði alveg getað staðið í Finnegans Wake. Mig minnir samt að hann hafi verið á Íslensku.

Ólöglegur þjóðsöngur

föstudaginn, júní 23rd, 2006

Ég var að komast að því að samkvæmt lögum um þjóðsöng Íslendinga er það sennilega ólöglegt að syngja þjóðsönginn sem einsöng.

Hin upprunalega gerð hans er nefnilega fjórrödduð.

Útsetning hans þar sem bara laglínan væri spiluð á rafgítar með hætti Jimi Hendrix væri því ólögleg, en ekki raddsett útgáfa eins og þessi.

Lagalistinn hingað til

fimmtudaginn, júní 22nd, 2006

Hér er listi af lögum sem ég hef æft á gítarinn:

  • I Should Have Known Better
  • Dagný
  • Bus Stop
  • Dream a Little Dream of Me
  • Sound of Silence
  • Whiskey in the Jar
  • All I Have to Do Is Dream
  • True Love Ways
  • Don’t Look Back In Anger

Það eru nokkur fleiri, t.d. Windmills of Your Mind, en ég tel þau ekki með þar sem ég hef ekki æft þau nógu vel, sérstaklega ekki taktinn.

Mér finnst listinn bara ágætur miðað við að ég hef átt gítarinn bara í rúmlega hálft ár.

Næst ætla ég að kaupa mér svona fiðlu:

Rafmagnsfiðla frá Stagg

Risaeðlan Microsoft og Billi Viðutan

sunnudaginn, júní 18th, 2006

Ég vil vekja athygli á stórgóðri grein á The Register. Smá útdráttur:

Bill’s particular brand of foresight is overlooked. He’s lauded for urging Apple to license its GUI because graphical interfaces were the future. As he wrote this, every personal computer available to the public, except the IBM PC, offered a graphical user interface. Bill’s 1995 book the Road Ahead describes a world of connected computers - connected through walled-garden behemoths like CompuServe and his own MSN Network - and doesn’t mention the internet once.