Lagalistinn hingað til

Hér er listi af lögum sem ég hef æft á gítarinn:

  • I Should Have Known Better
  • Dagný
  • Bus Stop
  • Dream a Little Dream of Me
  • Sound of Silence
  • Whiskey in the Jar
  • All I Have to Do Is Dream
  • True Love Ways
  • Don’t Look Back In Anger

Það eru nokkur fleiri, t.d. Windmills of Your Mind, en ég tel þau ekki með þar sem ég hef ekki æft þau nógu vel, sérstaklega ekki taktinn.

Mér finnst listinn bara ágætur miðað við að ég hef átt gítarinn bara í rúmlega hálft ár.

Næst ætla ég að kaupa mér svona fiðlu:

Rafmagnsfiðla frá Stagg

10 svör við færslunni “Lagalistinn hingað til”

  1. Þá sagði Erla:

    Mér þykir leitt að vera af þeirri kynslóð sem man Bus Stop með The Boys.

  2. Þá sagði Elías:

    Þetta lag er coverlag frá upphafi. Ég er búinn að komast að þeirri niðurstöðu að Hollies voru ekkert annað en coversveit. Áttu þeir nokkru sinni lag á vinsældalista sem var þeirra eigið?

  3. Þá sagði Lindablinda:

    Og hvenær er svo söngæfing? Ég er ekkert af neinni kynslóð en ég kann öll þessi lög og finnst þau öll svo ljómandi við hæfi………… og í minni tóntegund líka :-)

  4. Þá sagði Elías:

    Ég veit ekki … ég var að velta því fyrir mér að halda gítarpartý dauðans einhvern tímann síðsumars … enginn fær inngöngu nema hann eða hún sé með gítar meðferðis.

  5. Þá sagði Lindablinda:

    Er nóg að hafa hann meðferðis - þarf nokkuð að spila? Ég kann bara jólalög.

  6. Þá sagði Elías:

    Það var pælingin að það þyrfti bara að hafa hann meðferðis.

    Annars er allt óákveðið með stað og stund. Þetta er bara ein af hugdettum mínum, en þær eru svo margar að engum myndi endast æfin til að telja þær allar upp.

  7. Þá sagði Elías:

    Annars var ég að sjá aðra fiðlu sem er bara snilld: http://cgi.ebay.de/E-Violine-schwarz-silent-violin-Komplettausstattung_W0QQitemZ7423344774QQihZ016QQcategoryZ10180QQrdZ1QQcmdZViewItem

    Hönnunin er kúbísk. Eins og samstarfsverkefni Picassos og HP Lovecraft.

  8. Þá sagði baun:

    má koma með balalæku?

  9. Þá sagði Elías:

    Balalækur, mandólín, rafgítarar, sítarar, dúlsímerar og lútur virka líka. Öll plokkuð strengjahljóðfæri.

  10. Þá sagði Skarphéðinn:

    Þegar ég kem heim mun skoða þetta Hollies mál. Þó það reynist rétt hjá þér, þá breytir það ekki því að þeir voru sérlega góðir flytjendur. Og, jú, þeir sömdu sjálfir On a Carousel og Carrie Anne, hið minnsta. Það voru þó hittarar. Eitthvað var samið fyrir þá, einsog þeirra besta lag, Look Thru Any Window.

    Og Boys, mínir ágætu frændur, þeir fóru nú bara vel með lagið!

Leggðu orð í belg