Ólöglegur þjóðsöngur

Ég var að komast að því að samkvæmt lögum um þjóðsöng Íslendinga er það sennilega ólöglegt að syngja þjóðsönginn sem einsöng.

Hin upprunalega gerð hans er nefnilega fjórrödduð.

Útsetning hans þar sem bara laglínan væri spiluð á rafgítar með hætti Jimi Hendrix væri því ólögleg, en ekki raddsett útgáfa eins og þessi.

7 svör við færslunni “Ólöglegur þjóðsöngur”

  1. Þá sagði Svanfríður:

    Ef ólöglegt er að syngja þjóðsönginn sem einsöng þá ætti að taka mig fasta eða allavega sekta mig því ég söng þjóðsönginn sem einsöng á norænni skemmtun í fyrra og geri það áreiðanlega aftur í ár. Ætlarðu að segja einhverjum frá þessu?

  2. Þá sagði Elías:

    Ég er að hugsa um að senda inn kæru næst þegar einhver tenórinn syngur hann fyrir einhvern landsleikinn.
    Reyndar eru þetta skrýtin lög, því þau tilgreina að það sé ekki verk dómstóla að túlka þau, heldur forsætisráðherra.

    3. gr. Þjóðsönginn skal ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upprunalegu gerð. Ekki er heimilt að nota þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni.
    4. gr. Nú rís ágreiningur um rétta notkun þjóðsöngsins og sker þá forsætisráðherra úr.

  3. Þá sagði Hrafnkell:

    Held að þetta sé nú frekar hæpin röksemdafærsla. Sennilegra er, að ekki megi breyta laglínu, nú eða hljómagangi eða texta!

  4. Þá sagði Elías:

    Að syngja hann sem einsöng án undirleiks er strangt til tekið breyting á hljómagangi.

  5. Þá sagði Hrafnkell:

    Hmm, nei, það er það ekki. Hvernig er hægt að breyta hljómagangi þegar hann er ekki til staðar?

  6. Þá sagði Elías:

    Jú, það er breyting úr hljómagangi í engan hljómagang.

  7. Þá sagði Ásgeir:

    Heitir þjóðsöngurinn ekki Lofsöngur? Af hverju stendur Ó, Guð vors lands í lögunum?