Draumur um bankarán

Mig dreymdi í nótt að ég hefði gerst bankaræningi.

Ég og einhver annar, ég man ekki hver (það var einhver með mér, einhver nákominn eða góður vinur eða vinkona, ég bara man ekki eftir að hafa séð framan í hann eða hana) vorum að ræna banka. Við höfðum prentað út einhverja hótun sem við framvísuðum í banka. Þetta tók langan tíma, við vorum með allan bankann í gíslingu, en þegar leikurinn stóð sem hæst hvarf ég út um bakdyrnar með gríðarlega fjármuni í C4 umslagi. Svo fór ég til vinnu næsta dag eins og ekkert hefði í skorist.

Allt gekk sinn vanagang þar til einn morguninn sá ég hótunarbréfið á skrifborðinu mínu. Ég lét sem ekkert væri. Ég fór að lesa það, og fannst það ansi súrrealískt, það var texti sem hefði alveg getað staðið í Finnegans Wake. Mig minnir samt að hann hafi verið á Íslensku.

6 svör við færslunni “Draumur um bankarán”

  1. Þá sagði baun:

    Rán: Fyrirboði breytinga til hins betra.

    (Stóra dramaráðningabókin, Vaka-Helgafell, 2003)

  2. Þá sagði Elías:

    Því miður man ég ekki textann á bréfinu. Það var grænt A4 blað, prentað með bold Palatino hástöfum, jafnað til miðju. Tónninn var ekki eins og hótunarbréf bankaræningja, mikið frekar eins og yfirlýsing súrrealista, auk þess að vera fullt af nýyrðum og annars konar bjánagangi.

  3. Þá sagði baun:

    hmmm….erfitt að fletta palatínó og miðjujöfnun upp í draumaráðningabók. kannski þýðir þessi draumur að þú sért óvenju næmur fyrir smáatriðum (en ekki aðalatriðum?) ;-)

  4. Þá sagði Harpa:

    Ég get ekki beðið eftir að dreyma eitthvað nógu spennandi til að geta fengið ráðninu hjá Bauninni :D

  5. Þá sagði Elías:

    Skiptir máli hvort maður hafi verið rændur, eða sé sjálfur ræninginn?

  6. Þá sagði baun:

    já, það held ég. að dreyma ræningja er slæmt, en þar sem þú sjálfur ert ræninginn þá horfir öðruvísi við. þú ert nefnilega ekki ræningi í alvörunni, heldur tölvusnillingur.

Leggðu orð í belg