Orkuveituauglýsingin

Ég var að skoða þessa margumræddu orkuveituauglýsingu og ég verð að segja að ég vorkenni börnum sem fá svona einfeldningslegar skýringar á hlutunum.

Annars get ég trútt um talað, börnin mín sofna þegar ég útskýri hlutina fyrir þeim.

5 svör við færslunni “Orkuveituauglýsingin”

  1. Þá sagði Ásgeir:

    Ég gat ekki einu sinni horft á þetta, þetta er svo helvíti leiðinlegt.

  2. Þá sagði baun:

    jiiiii…..hrikalega hallærisleg auglýsing! eru þeir komnir með úldinn amríkana í vinnu?

    (og útskýringarnar á rafmagninu voru vel faldar á bak við 120 kvenmannsleggi)

  3. Þá sagði baun:

    og af hverju eru þeir að auglýsa??? er samkeppni??? eru það bændaræflarnir sem virkja bæjarlækinn???

  4. Þá sagði Elías:

    Það á að heita að það sé hægt að fara í samkeppni við Orkuveituna núna. Slíkt fyrirkomulag er nauðsynleg réttlæting einka(vina)væðingar.

  5. Þá sagði Árni:

    Hvur fjárinn???
    Þegar dóttir mín fór að velta því fyrir sér hvaðan rafmagnið kemur fékk hún að skoða túrbínur, spennuvirki og uppistöðulón. Ég held hún skilji þetta betur en höfundur þessarar auglýsingar.

Leggðu orð í belg