Undarleg þróun

Ég var að komast að einu um sjálfan mig: ég er hættur að horfa á sjónvarp. Samt er þetta ekki eins og hjá sumum kunningjum mínum, að ég sé farinn að horfa á kvikmyndir og sjónvarpsþætti á tölvunni sem ég hleð niður af netinu. Nei, ég er alfarið hættur að horfa á eitt eða neitt. Ég hlusta á tónlist, spila á gítar, hljómborð eða munnhörpu, les greinar, bækur, fréttir og hvaðeina annað af netinu og svo spjalla við fólk á IRC og MSN, aðallega þó IRC, þar sem þar getur maður hitt fólk sem maður þekkti ekki áður og spjallað við ótal manns samtímis.

Eins og ég minntist á í fyrri færslu, þá var ég að sjá Orkuveituauglýsinguna. Ég hafði heyrt fólk tala um hana og séð ótal marga minnast á hana, en hafði aldrei séð hana sjálfur. Ég þurfti að fara á vef OR til að sjá hana.

Ég fer heldur ekki mikið í bíó, ég hætti að mestu að fara í bíó fyrir uþb 15 árum síðan. Mér finnst það of mikið vesen. Mér finnst ég ekki missa af neinu að sjá myndir af 10 tommu skjá 5 metra í burtu. Konan mín minnti mig á það um daginn að ég hef bara einu sinni farið með henni í bíó. Þó hef ég farið oftar með yngri dóttur minni, eða 3 eða 4 sinnum.

Ég held stundum að ef ég hefði verið uppi á umbrotatímum kirkjunnar hefði ég gerst myndabrjótur. Yfirleitt finnst mér eitt orð segja meira en þúsund myndir.

4 svör við færslunni “Undarleg þróun”

  1. Þá sagði Ros:

    Þetta er ekki undarleg þróun, heldur ósjálfráð varnarviðbrögð hugsandi manns við yfirgengilegu myndrænu áreiti. Bókin er svotil alltaf betri en myndin :-)

  2. Þá sagði Elías:

    Fylgjendur myndræns áreitis, idolatres eða eikonodouloi eins og þeir kölluðust til forna, fengu meðal því komið til leiðar að öðru boðorðinu var sleppt og því tíunda skipt í tvennt til að halda réttum fjölda. Komm on, það var raunveruleg ástæða fyrir þessu borðorði!

  3. Þá sagði Ros:

    Boðorðin virðast vera eitthvað á reiki hjá blessuðum guðsmönnunum; Wikipedia hefur eitt eftir Mósebók http://is.wikipedia.org/wiki/Bo%C3%B0or%C3%B0in_t%C3%ADu en kirkjan.is er með útgáfuna sem þú vísar til http://www.kirkjan.is/?trumal/kenning/bodordin_tiu

  4. Þá sagði John Doe:

    f1a16b7d356b40dd25c053fc540f3b35

Leggðu orð í belg