Vill nokkur heilvita manneskja hlusta á Árna Johnsen?

Hvers vegna er þessi maður að syngja og spila opinberlega?

Árni Johnsen er gersamlega vitalaglaus og gæti ekki haldið lagi þótt líf hans lægi við. Það er vísindaleg staðreynd. Hvað gítarleikinn snertir, þá veit ég dæmi um að fullorðið fólk hafi náð margfalt meiri færni á tveimur vikum án þess þó að hafa snert á hljóðfæri áður á æfinni.

Hann er verri en Björgvin Halldórsson. Að minnsta kosti var Björgvin farinn að halda lagi eftir um það bil 10 ár í sviðsljósinu. Eða hvað veit ég, kannski hefur upptökutækninni bara fleygt svona fram.

6 svör við færslunni “Vill nokkur heilvita manneskja hlusta á Árna Johnsen?”

  1. Þá sagði eddinn:

    jú, ég veit um eina stelpu.. Stína “Creepz”.. en hana er að finna á IRCNet inná #iceland20+
    hún er obsessed um Árna og hefur verið í fréttum og þáttum útaf því í gegnum tíðina

  2. Þá sagði Elías:

    Hmm … De Clerambault syndrome, ef til vill?

    Einhvern tímann ætla ég að stofna hljómsveit sem heitir The De Clerambaults.

  3. Þá sagði baun:

    er atriði að vera heilvita? finnst Árna það atriði? er Árni atriði?

    bara eitt af þessu sem maður klórar sér í hausnum yfir…

  4. Þá sagði Elías:

    Hann er skemmtiatriði amk einu sinni á ári.

  5. Þá sagði Elías:

    Hann er Florence Foster Jenkins Íslands.

  6. Þá sagði Lindablinda:

    Heil eyja dáir manninn og syngur með honum…. eitthvað sem ég átta mig aldrei á.

Leggðu orð í belg