Ritskoðun
Að gefnu tilefni hef ég tekið upp nýja ritstjórnarstefnu: hér verður ekki framar hægt að minnast á ýmis vinsæl stinningarlyf, róandi lyf eða kvalastillandi. Öllum slíkum athugasemdum verður sjálfkrafa eytt.
Ég ætla ekki að láta netlyfsala og aðra stórglæpamenn misnota þennan vef til að googlebomba sitt skran.
29. júlí 2006 klukkan 18:11
já en þá missum við af mjög nauðsynlegum og mikilvægum umræðum um ágæti og notkunarmöguleika stinningarlyfja! (það er að sjálfssögðu nauðsynlegt að ræða þessi mál akkúrat og eingöngu á þessum vef)
29. júlí 2006 klukkan 20:29
Eins og Lao Tzu sagði; að stjórna stóru ríki er eins og að sjóða litla fiska.
29. júlí 2006 klukkan 21:20
Ég hef aldrei prófað þau, veistu til þess að þau séu sniðug?
Hvernig verður maður sér út um þau?
30. júlí 2006 klukkan 0:08
Aldrei prófað hvað, að stjórna stóru ríki eða að sjóða litla fiska? Fiskana færðu í fiskbúðinni en til að fá stórt ríki til umráða þarftu sennilega að eiga rétta pabbann.
Má annars minnast á óvinsæl stinningarlyf hér?
30. júlí 2006 klukkan 11:18
“Hvernig verður maður sér út um þau?”
Ég dey úr hlátri. Lestu ekki auglýsingarnar Elías? Það er sennilega þinn feill ef þig langar að vita hvernig þú verður þér úti um þetta dót. Snilld
30. júlí 2006 klukkan 14:25
Slíkt myndi vera brot á einu af mínum grundvallarprinsippum og það er að kaupa aldrei neitt af spammerum. Svo er ég haldinn sérstakri blindni á auglýsingar.
Ég hafði hugsað mér einhverjar skuggalegar týpur sem hanga upp við húsvegg í skuggahverfinu og eru með heilu lyfjaverslanirnar innanklæða og hvísla “psst! stinningarlyf?” til þeirra sem eiga leið framhjá.
Eða getur hver sem er fengið heimilislækninn til að gefa út lyfseðil upp á þetta? Þarf maður að vera haldinn ristruflunum til að fá lyfseðil? Hvers vegna er þá verið að spamma þetta svona grimmt? Þorir fólk ekki að biðja sinn heimilislækni um þetta?
30. júlí 2006 klukkan 16:22
ha, er verið að bomba þig? voðalegt er að heyra þetta…
30. júlí 2006 klukkan 16:51
“Googlebomb” er þegar búnir eru til linkar út um allt með einhverju tilteknu orði sem vísar á tiltekna vefsíðu. Að lokum tengir Google viðkomandi orð við viðkomandi vefsíðu. Þetta má meðal annars sjá ef þú slærð inn orðið “baun” á google.
Nýlega hafa birst ansi mörg komment á þetta blogg með einhverju bulli á ensku, en viðkomandi hefur sagst heita nafni einhvers stinningarlyfs og síðan hans hefur verið sölusíða fyrir þetta lyf. Tilgangurinn er að sú síða komi hæst upp í pageranking í google.
31. júlí 2006 klukkan 9:49
oj, en leiðinlegt:(
31. júlí 2006 klukkan 9:53
BAUN er víst Breska þvagfærahjúkrunarfræðingasambandið.
31. júlí 2006 klukkan 10:45
Já og svo er Beth Baun danskur innanhússhönnuður.
31. júlí 2006 klukkan 16:35
Úff, ég minntist í gríni á eina gerð stinningarlyfs í bloggi hjá mér og árangurinn lét ekki á sér standa.
31. júlí 2006 klukkan 18:00
lol…baunin er eitt og annað, þetta og hitt:-D
31. júlí 2006 klukkan 21:00
Má bjóða þér v1agra?
31. júlí 2006 klukkan 21:04
En það skrifar enginn v1agra í leitarvélar. Til þess er leikurinn gerður, ekki bein markaðssetning.
31. júlí 2006 klukkan 21:06
Eða oftast, þeas.