Archive for júlí, 2006

Áhrif heilsufars á ritstíl

föstudaginn, júlí 14th, 2006

Með bakveiki verða kyrrsetur stuttar og einbeiting slök.

Eigi er þó allt með svo öllu illt að eigi boði nokkuð gott; mér skilst að ég geti fengið þessa veikindadaga skráða sem slíka og fengið nýtt frí út á þá.

Til útskýringar

föstudaginn, júlí 14th, 2006

PDF-file

Mælispjald á herðar

föstudaginn, júlí 14th, 2006

Ég hef verið að velta fyrir mér einu atriði í íslenskum stjúpusögum: hvers vegna flagðið sést aldrei fyrr en það hefur verið mælt.

Vondar stjúpur í íslenskum ævintýrum eru yfirleitt “tröll”, en tröll ævintýranna eru gerólíkur þjóðflokkur tröllum þjóðsagnanna. Tröll ævintýranna eru göldrótt og geta virst vera fallegar manneskjur, þangað til einhverjum dettur í hug að bregða mælispjaldi á herðar þeim. Þá breytast þau samstundis.

Þetta minnir mig á kött Schrödingers. Eða þá á sum lögmál teiknimyndaeðlisfræðinnar.

Bakveiki í fríinu

þriðjudaginn, júlí 11th, 2006

Ég hef legið fyrir meira eða minna síðan um helgi, en ég varð bakveikur á föstudaginn. Þetta er ekki alveg mitt eftirlætisástand.

Bless, Cannondale

miðvikudaginn, júlí 5th, 2006

Ég var að leggja mínu trausta Cannondale M-400 hjóli í síðasta sinn eftir rúmlega 10 ára notkun. Ekki var það nú merkilegt hjól sem ég fékk mér í staðinn, en þó. Það er fyrsta hjólið sem ég eignast sem er með dempurum (sem mér finnst óþarfa pjatt) og líka það fyrsta með diskahemlum. Þetta er sem sagt Prostyle Puma frá Bónusveldinu. Í leiðinni keypti ég Prostyle Lucky Cat handa stelpunni og hún er núna hamingjusamasta stelpa í heimi, eða amk gríðarlega montin.

Eitt finnst mér samt undarlegt með þessi Prostyle hjól. Á hverju einasta hjóli sem Hagkaup hefur selt undanfarin nokkur ár hefur staðið “www.prostylebikes.com” en prostylebikes.com er lén sem er skráð á “Baug hf” og kontaktaddressan er “jst@baugur.is”. Þessi vefur hefur aldrei virkað, vegna þess að lénið er ekki skráð á nafnaþjónana sem eru skráðir fyrir því, en það eru “tommy.hagkaup.is” og “ns1.xnet.is”. Ennfremur virkar kontaktaddressan ekki, þar sem netföng sem enda á @baugur.is virka yfirhöfuð ekki, þar sem þau hafa ekki neinn skráðan póstþjón (MX, eða Mail eXchanger) og netþjónninn “baugur.is” er ekki póstþjónn.

Ætli þetta sé með ráðum gert, eða ætli það sé eitthvað endemis glóruleysi?

Það góða við staðla er að það er úr svo mörgum að velja

þriðjudaginn, júlí 4th, 2006

Það fer stundum í taugarnar á mér að það er ekki hægt að sýna kvikmyndir í sjónvarpi nema 4,16% hraðar en þær eiga að vera. Þar af leiðandi er öll tónlist hærri um sem nemur tæpum hálftón, eða A er uþb 458 Hz í stað 440. Næsta nóta fyrir ofan er að réttu  uþb 466 Hz á temperaða skalanum.

Stelpan mín var að komast að þessu áðan þegar hún var að reyna að spila með Hefðarköttunum lagið “Scales and Arpeggios”.

Ástæða þessa er auðvitað sú að kvikmyndir sem gerðar eru til sýninga í kvikmyndahúsum eru teknar upp á 24 römmum á sekúndu, en slíkt er ekki hægt að sýna í sjónvarpi, sem kýs frekar eitthvað margfeldi af 25.

Válegir draumar

þriðjudaginn, júlí 4th, 2006

Í morgun sagði konan mér að sig hefði dreymt að öll heimsbyggðin hefði lagst í farsótt sem kæmi skyndilega yfir, eirði engum og ylli krampaköstum.

Svo um hádegið sagði yngri dóttir mín að sig hefði dreymt að það væri ófreskja úti um allt og þótt við gætum falið okkur fyrir henni, væru alltaf einhverjir að flýja frá henni til okkar og væru með því að leiða hana til okkar.