Launhelgar í Valhöll
Njósnari minn í Valhöll segist hafa orðið vitni að eftirfarandi í gær:
Hvítserkjuð hersing gengur inn í hátíðarsal, hvítar topphúfur skína; blá augu gægjast gegnum andlitsgrímur. Þeir raða sér stillt og hátíðlega í hálfhring kringum mannsmynd í miðju salarins. Árni Johnsen (því það er hann) lítur upp á hina blessuðu hersveit, ásjóna hans er upplýst og yfir henni er goðumlík ró.
Björn Bjarnason mælir fyrstur: Hér höfum við auman mann, iðrandi syndara er beiðist inngöngu í samfélag heilagra.
Kór: Er hann verðugur?
Björn Bjarnason: Hann er hinn Drottins Smurði.
Kór: Svo skal vera. Dýrð sé Davíð í upphæðum.
Rödd að ofan (hljómar samt nákvæmlega eins og Geir Haarde að herma eftir Davíð Oddssyni): Hann er minn elskaði sonur, sá er ég hef velþóknun á.
Kór: Hallelúja!
Geir Haarde: Það skal svo vera. Rís upp, sonur vor og meðtak blessun vora.
Kór: Hann er innmúraður.
Meira veit heimildamaður minn ekki, því þrír drengir í stuttbuxum komu honum að óvörum og skutu hann með deyfipílum og vaknaði hann með höfuðverk dauðans í tattústofu í austurborginni.
Þá þótti mér ég fara að gráta og þá vaknaði ég.
30. ágúst 2006 klukkan 12:38
Váááá! DSL eða LSD?
30. ágúst 2006 klukkan 13:05
Hljómar sennilega, samt finnst mér upphaf og endir ekki passa alveg:
Njósnari minn í Valhöll segist hafa orðið vitni að eftirfarandi í gær:…
Þá þótti mér ég fara að gráta og þá vaknaði ég.
30. ágúst 2006 klukkan 13:12
Mér finnst skemmtilegast þegar sögur innan í sögum leysast á röngum fleti (”jump out of the nested loop in the wrong place” mætti segja á ensku) eins og sjá má víða í 1001 Nótt, Don Kíkhóta og í hinni snilldarlegu og póstmódernísku smásögu Stjörnu-Odda Draumur sem er einn Íslendingaþátta.
30. ágúst 2006 klukkan 14:05
Burtséð frá allri stílfræði er það auðvitað hrollvekjandi hugsun að þetta gæti verið ofur raunsæ lýsing á atburðarrás…
30. ágúst 2006 klukkan 14:08
Heh. Annars var ég allt í einu að kveikja á perunni núna áðan og veit nú hver þú ert. Vertu velkominn hér.
30. ágúst 2006 klukkan 14:09
Ég vil líka taka fram að ég er ekki, né hef ég verið meðlimur í leynifélagi.
Ennfremur vil ég taka fram að enginn meðlimur í leynifélagi hefur nokkurn tímann upplýst mig um nokkuð það sem leynt átti að fara.
30. ágúst 2006 klukkan 15:18
Þá ertu klárari en ég hélt, kæri Sherlock. Komdu með vísbendingu!
30. ágúst 2006 klukkan 15:46
Ég var ekki að tala um þig, en ég tel mig líka vita hver þú ert. Báðir eruð þið í Danmörku (sennilega, þó gæti annar verið í Noregi en hinn á Bretlandi), en þekkist ekki, þótt þið hafið sennilega hist heima hjá mér árið 1979. Annar er töltölulega nýfluttur út, en hinn flutti út um miðjan níunda áratuginn og hefur sjaldan látið sjá sig síðan.
Þið vitið hverjir þið eruð.
30. ágúst 2006 klukkan 16:02
Ég gengst fúslega við því að vera tiltölulega nýfluttur til Danmerkur, ég þræti heldur ekki fyrir að hafa drepið niður fæti á Spítalastígnum milli 1978 og 1980 u.þ.b.
Well done Holmes
30. ágúst 2006 klukkan 16:50
Góð saga!
30. ágúst 2006 klukkan 16:53
Takk fyrir, dóttir góð.
30. ágúst 2006 klukkan 22:56
Þetta er nú bara með því betra sem ég hef séð hjá þér. Það ískrar ennþá í mér.
31. ágúst 2006 klukkan 9:06
hvaða músík passar við leikþáttinn/drauminn?
31. ágúst 2006 klukkan 11:10
“O Fortuna” úr Carmina Burana?
31. ágúst 2006 klukkan 11:20
Sjálfri datt mér í hug “Ég er HERMAUR” með Eyþóri berum að ofan að leika á sellóið.
31. ágúst 2006 klukkan 11:22
Er ekki eitthvað á borð við Rammstein alveg passlegt?
31. ágúst 2006 klukkan 12:40
Mér datt í hug kórinn sem heyrist gegnum þilið í Rosemary’s Baby eða tónlistin við kvikmyndina Eyes Wide Shut.
Annars væri eflaust hægt að finna eitthvað við hæfi í for-gregórskum kirkjusöng, helst þá í austurkirkjunni.
31. ágúst 2006 klukkan 13:14
T.d. http://www.christusrex.org/www2/cantgreg/cantus/hy_gloria_laus.mp3
31. ágúst 2006 klukkan 14:39
Þetta er ekki nógu demónískt.
1. september 2006 klukkan 0:02
Það sem heillaði mig mest við þessa sögu var myndræn og ekki siður “hljoðræn” (ef það orð er til) tjaning i orðum. Hun sprettur fersk ut ur alfakletti og skilur eftir sig dyrmæt augna og eyrnablik.
1. september 2006 klukkan 13:39
“eyrnablik” stórkostlegt orð:D
3. september 2006 klukkan 23:57
Ég sé að Elías er ekki bara berdreyminn heldur hefur líka hæfileika sem miðill… ég tek ofan fyrir þér.