Archive for september, 2006

Jagshemash!!!

laugardaginn, september 30th, 2006

Þetta var það eina sem ég vildi segja. Virkilega.

Mætti ég rétta þér fána?

þriðjudaginn, september 26th, 2006

Ég fór í göngu niður Laugaveginn og þaðan á fund á Austurvelli. Þegar þangað var komið hitti ég móður mína; hún var þar ásamt Birgi manni sínum og Árna Finnssyni náttúruverndarpostula. Hún hélt á gríðarstóru mótmælaskilti sem var að sliga hana, eða að minnsta kosti gaf hún það í skyn við mig, svo ég tók við því. Ég man reyndar ekki hvað stóð á því, en það var áreiðanlega lengsta skiltið á Austurvelli það kvöldið. Ég sá auðvitað strax á eftir því að hafa tekið við þessu, svo ég leitaði dauðaleit að einhverjum til að taka við þessu, t.d. ef ég sæi dóttur mína einhvers staðar. Mér varð hugsað til þess að ein þekktasta ljóðabók Birgis heitir “Réttu mér fána.” Nútíma útgáfan myndi þá heita “Mætti ég rétta þér fána?”

Dóttirin skrifaði annars ágæta grein í Morgunblaðið í morgun.

Ég girnist

laugardaginn, september 23rd, 2006

Rickenbacker 325 Capri

Ég bara verð að fá þennan gítar. Hann er reyndar á gersamlega fáránlegu verði, eða um 2000 bandaríkjadali. Ódýrustu Rickenbacker gítararar virðast kosta rúmlega 1200 bandaríkjadali. Mér finnst reyndar þeir vera þess virði; hálsinn er snilld og pickuparnir koma með tærasta hljóm sem ég hef heyrt í rafgítar. Hins vegar virðast þeir hafa hækkað mikið í verði síðan snemma á sjöunda áratugnum. Eins og Höfner 500/1 bassinn, sem var ódýrasti bassi sem hægt var að fá þá, en kostar núna um 1500 bandaríkjadali.

Koyaanisqatsi

föstudaginn, september 22nd, 2006

Ég er nú nýkominn aftur frá Bandaríkjum Norður Ameríku, þar sem ég eyddi fjórum dögum í Research Triangle Park, sem er landsvæðið á milli Raleigh, Durham og Chapel Hill í Norður-Karólínufylki.

Allt var mjög flott, fólkið sem ég hitti var mjög sniðugt, úrvalið í verslununum var mjög gott, hótelið var það þægilegasta sem ég reynt; allt hefði átt að vera með besta móti, en samt fannst mér þetta allt ómögulegt. Ég myndi ekki vilja búa þarna þótt ég fengi fimm milljónir á mánuði fyrir (kannski gæti ég pínt mig í örfáa óhamingjusama mánuði, samt).

Mér leið þarna eins og líf mitt væri hrokkið úr lið. Eðlilegast væri að halda að það sé “jet lag”, eða ruglingur vegna tímamismunar. Skýringin sem mér finnst líklegust er þó eitthvað sem ég kann ekki að útskýra fyrir öðrum. Það eru engar borgir þarna, stærsti bærinn, sem er líka höfuðborg fylkisins, er á stærð við Grundarfjörð, allt annað eru bara mis-stórir sveitabæir sem kallast Mall á tungu innfæddra.

Tilfinningin sem ég fékk minnti mig á kvikmynd sem ég sá þegar ég var í kvikmyndaskóla og hét Koyaanisqatsi. Það minnti mig líka pínulítið á eitthvað sem Old Lodge Skins sagði í kvikmyndinni Little Big Man, eitthvað um að vera úr tengslum við náttúruna.

Að minnsta kosti finnst mér eins og ég hafi ferðast það hratt undanfarna daga að sálin hafi orðið einhvers staðar eftir, því hún getur ekki ferðast svona hratt.

Mér leið frábærlega þegar við komum við í Boston á heimleiðinni. Loksins var eitthvað sem leit út eins og siðmenning.

Manhã, tão bonita manhã

laugardaginn, september 9th, 2006

Ég var að horfa á Orfeu Negro í annað sinn síðan 1970 og það er bara besta mynd allra tíma.

Þegar ég sá hana síðast, sex eða sjö ára að aldri, skildi ég textann en ekki framvinduna.

Núna skil ég framvinduna, en ekki textann.

Reyndar átta ég mig samt á flestu sem fólk segir ef ég hugsa mig um.

Wrapped in Rockabilly

föstudaginn, september 8th, 2006

Ég er genginn í tónlistarlegan barndóm. Playlistinn minn er bara þrjú lög:

  • The Beatles - Slow Down
  • The Beatles - Bad Boy
  • The Beatles - Dizzy Miss Lizzie

Öll þessi lög eru eru eftir sama höfund, Larry Williams. Ég vissi það reyndar ekki áður, ég var bara að komast að því núna.

Hugmynd að slagorði á skyrtubol

mánudaginn, september 4th, 2006

Langar þig til að auka mikilvægi lögreglunnar?

Ofbeldi er úr myndinni!