Manhã, tão bonita manhã

Ég var að horfa á Orfeu Negro í annað sinn síðan 1970 og það er bara besta mynd allra tíma.

Þegar ég sá hana síðast, sex eða sjö ára að aldri, skildi ég textann en ekki framvinduna.

Núna skil ég framvinduna, en ekki textann.

Reyndar átta ég mig samt á flestu sem fólk segir ef ég hugsa mig um.

3 svör við færslunni “Manhã, tão bonita manhã”

  1. Þá sagði barbie:

    Rosa ertu klár. Ég skil aldrei hvað fólk er að meina því fólk segir oft annað en það meinar eða meinar annað en það segir.

  2. Þá sagði Elías:

    Tungumálið var gefið manninum svo hann gæti leynt hugsunum sínum.

    Samtölin í þessari mynd eru ekki mjög flókin og fólkið í henni talar ótrúlega mikið með líkamstjáningu, eiginlega meira en með orðum.

    Ég held samt að ég kaupi DVDinn fljótlega, ef ekki nema bara til að fá textann.

  3. Þá sagði barbie:

    Ógeðslega er þetta löng mynd hjá þér…

Leggðu orð í belg