Ég girnist

Ég bara verð að fá þennan gítar. Hann er reyndar á gersamlega fáránlegu verði, eða um 2000 bandaríkjadali. Ódýrustu Rickenbacker gítararar virðast kosta rúmlega 1200 bandaríkjadali. Mér finnst reyndar þeir vera þess virði; hálsinn er snilld og pickuparnir koma með tærasta hljóm sem ég hef heyrt í rafgítar. Hins vegar virðast þeir hafa hækkað mikið í verði síðan snemma á sjöunda áratugnum. Eins og Höfner 500/1 bassinn, sem var ódýrasti bassi sem hægt var að fá þá, en kostar núna um 1500 bandaríkjadali.
23. september 2006 klukkan 21:16
Þú getur ekki tapað. Þessir gítarar halda verði ef þú færð gott eintak. Go for it.
23. september 2006 klukkan 23:18
Kauptann. Átt það skiiilið.
24. september 2006 klukkan 16:35
Þetta er fallegt hjlóðfæri. Ekki spurning um að ráðast á gripinn!
24. september 2006 klukkan 20:14
Já, ég er búinn að reikna það út að ef ég gef börnunum bara hafragraut og sósulaust pasta næsta hálfa árið þá ætti það að ganga.
25. september 2006 klukkan 8:17
Iss, börnin hafa nú ekkert gott af því að hafa sósu á pastanu. Gítarinn er miklu mikilvægari.