Archive for september, 2006

Bönnum afbrot!

mánudaginn, september 4th, 2006

,,Við viljum að sett verði í lög ákvæði um að mótþrói við handtöku sé refsiverður, líkt og er í bandarískum lögum,” segir Sveinn Ingiberg Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.

Það var og.

Verður líka refsivert að veita mótþróa við ólöglegri handtöku? Hvað með sjálfsvörn? Yrði hún líka bönnuð?

Það er mjög varasamt að gefa lögreglu miklar heimildir umfram hinn almenna borgara. Það leiðir til lögregluríkis.

Stefnufesta

mánudaginn, september 4th, 2006

Það hefur ávallt talist til dyggða að standa við sínar ákvarðanir.

Dæmi:

Þú hefur borgað 10 þúsund kall fyrir bestu sæti í leikhúsinu. Þegar sýning er nýhafin brýst út eldur. Hvað gerirðu?

  1. Reynir að koma þér út fljótt og örugglega, án þess að valda troðningi eða ofsahræðslu.
  2. Situr sem fastast. Þú hefur fjárfest of mikið í þessari sýningu til að henda því á glæ.

Svar tvö er augsýnilega réttast. Fyrir utan það virðast sumir ekki skilja jafn einfalda röksemdafærslu og þessa:

  • Við verðum að gera eitthvað.
  • Að byggja álver er eitthvað.
  • Ergó, við verðum að byggja álver.

Af hverju skilur sumt fólk ekki svona einfaldar röksemdafærslur?

Hið stóra samhengi hlutanna

sunnudaginn, september 3rd, 2006

Það er óhjákvæmilegt að næsta ríkisstjórn verði vinstri stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn myndi aldrei taka neitt annað í mál, því annars þyrftu þeir sjálfir að stýra þjóðarskútunni út úr þeim ógöngum sem þeir hafa nú komið henni í.

Vinstri stjórnir hafa alltaf verið alibi fyrir undangengnar hægri stjórnir. Þegar kemur að skuldadögunum eftir langvarandi hægri stjórn henda þeir stjórnartaumunum til vinstri og setjast síðan í baksætið og fara að gagnrýna.