Frá og með morgundeginum mun vaxandi fjöldi útlendinga sniðganga íslenskar vörur og allt sem íslenskt er. Fjöldi þeirra í Bretlandi einu mun nema nokkrum milljónum, ef ekki tugum milljóna, innan nokkurra vikna.
Allt vegna þess að fylgjendur hvalveiða eru það miklir villimenn að þeir skilja ekki hvaða hug útlendingar bera til hvalveiða.
Það má alveg klóra sér í rassinum, bora í nefið og éta það og slefa svo opinmynntur. Það er alls ekki bannað. Hins vegar er hætt við að fólk fari að sniðganga þig og líta þig hornauga.
Íslendingar lögleiddu kristni sem opinbera trú á sínum tíma, ekki vegna þess að þeir voru svo kristnir, heldur til þess að geta talist til siðaðra þjóða. Við þurfum sams konar umbreytingu í dag.