Íslenska útrásin liðin undir lok
Frá og með morgundeginum mun vaxandi fjöldi útlendinga sniðganga íslenskar vörur og allt sem íslenskt er. Fjöldi þeirra í Bretlandi einu mun nema nokkrum milljónum, ef ekki tugum milljóna, innan nokkurra vikna.
Allt vegna þess að fylgjendur hvalveiða eru það miklir villimenn að þeir skilja ekki hvaða hug útlendingar bera til hvalveiða.
Það má alveg klóra sér í rassinum, bora í nefið og éta það og slefa svo opinmynntur. Það er alls ekki bannað. Hins vegar er hætt við að fólk fari að sniðganga þig og líta þig hornauga.
Íslendingar lögleiddu kristni sem opinbera trú á sínum tíma, ekki vegna þess að þeir voru svo kristnir, heldur til þess að geta talist til siðaðra þjóða. Við þurfum sams konar umbreytingu í dag.
18. október 2006 klukkan 21:13
Og svo merkilegt að algengustu rökin eru: Við eigum ekki að beygja okkur undir vilja einhverra fámennra öfgahópa….. Bleee. Urra.
18. október 2006 klukkan 22:21
Við ættum að skylda alla Íslendinga til að búa úti í hálft ár milli tvítugs og 25. Svona í staðinn fyrir herskyldu.
19. október 2006 klukkan 13:19
Er mjög sammála þér. Og þá ekki í íslensku þorpi í Árósum.
20. október 2006 klukkan 8:37
Já, þetta er alveg merkilegt. Við höldum að við vitum betur, gerum það sem okkur sýnist og látum okkur standa á sama um hvað öðrum finnst… hvenær skyldu íslendingar fatta að það gæti komið sér vel að ávinna sér virðingu í augum annarra þjóða?