Adagio Sostenuto
Um daginn var ég að finna mp3 sem ég hafði gert fyrir nokkrum árum af MIDI-skrá sem ég gerði í kringum 1992.
Þetta er lyftumúsík dauðans. Hægt er að nota þetta t.d. sem “hold”-tónlist í símstöð þar sem mikið af reiðu fólki bíður á línunni. Ég áskil mér náttúrlega öll réttindi.
22. október 2006 klukkan 17:02
Ég held að Kristján Loftsson sé einmitt að leita að biðtónlist, eða símastefi. Maður skyldi ætla það.
22. október 2006 klukkan 19:12
já þú ættir kannski að bjóða honum þetta?
23. október 2006 klukkan 0:41
Fyrir hann er það 5000 kall per símtal.
23. október 2006 klukkan 8:40
að sjálfsögðu…
23. október 2006 klukkan 10:26
reyndar líka ákveðið cheek að áskilja sér öll réttindi að Beethoven
23. október 2006 klukkan 11:37
Þetta er líka nördalegt!!!
23. október 2006 klukkan 15:07
Ætlarðu ekkert að bera af þér endurteknar ásakanir um nördisma? Ég er klár með popp og kók.
23. október 2006 klukkan 16:24
Svaka nördalegt. Og alveg killing me softly blær á þessu,
23. október 2006 klukkan 19:36
Ég held að Elías vilji vera nörd
23. október 2006 klukkan 20:23
Ég man þá daga þegar ég gat spilað þetta - en eins og manneskja en ekki eins og vél
24. október 2006 klukkan 10:17
nei, veistu Linda, þetta er nefnilega alveg magnað nálægt einum besta flutningi sem ég veit á þessu. Yfirleitt er þetta teygt og togað og allt of rómantískt…
24. október 2006 klukkan 22:45
Ég spilaði þetta af miklum krafti og með hæfilega mikilli illsku. Ekkert rómantískt við þetta. Bara tregi og reiði