Senza sordini

Í umræðunni um hleranirnar undanfarið hef ég heyrt fólk halda því fram að í gamla símkerfinu hafi verið erfiðara að hlera en með nútíma stafrænni tækni. Í rauninni er munurinn lítill.

Í gamla kerfinu þurfti bara einn innmúraðan símamann sem gæti tengt línu þess sem njósnað er um samhliða inn í leigulínu til njósnarans. Þannig gæti hann og upptökutæki hans verið hvar sem er.

Þetta kæmist aldrei upp nema það væri sérstaklega leitað eftir því.

Leggðu orð í belg