Spurningaleikurinn

Ég hef ákveðið að stofna til spurningaleiks hér. Fyrsta spurningin ætti að vera frekar einföld.

Í hvaða lagi komu orðin “Here come ol’ flattop” fyrst fyrir í texta? Hér er spurt um nafn lags og höfund.

13 svör við færslunni “Spurningaleikurinn”

  1. Þá sagði HT:

    Hmm - Beatles Come together???
    Grunsamlega létt, sennilega eitthvað eldra…

  2. Þá sagði Elías:

    Nei, já, þetta er ekki rétt svar. Þú ert sá fyrsti sem fellur í gildruna.

  3. Þá sagði Elías:

    Hér kemur fyrsta vísbending: sú saga gengur að annar skráðra höfunda lagsins Come Together hafi samþykkt að gefa lagið út á plötu sem borgun fyrir að hafa notað þetta textabrot og gítarstef úr þessu lagi.

  4. Þá sagði hildigunnur:

    Chuck Berry, You Can’t Catch Me?

  5. Þá sagði hildigunnur:

    eða var þetta önnur gildra ;-)

  6. Þá sagði Elías:

    Já! Hvernig fannstu það?

  7. Þá sagði hildigunnur:

    gúgglverja, maður!

  8. Þá sagði Elías:

    Döh! Ég var ekki einu sinni búinn að prófa þetta, ég hélt að þessi gáta mín væri allt of esoterísk. Þetta var bara eitthvað sem ég heyrði um daginn, reyndar í flutningi The Rolling Stones. Reyndar heyrði ég það oft þegar ég var 13-14 ára, en tengdi aldrei.

  9. Þá sagði hildigunnur:

    kúl, ég sem get aldrei neitt í svona leikjum (tja, nema þessum hjá Þorbirni bróður, þar urðum við tónlistarfræðingurinn jöfn og fengum ekki aukaspurningu)

    Ekki það, ef þú passar þetta betur héðan í frá á ég ekki eftir að geta neitt meira…

  10. Þá sagði Fríða:

    Er ekki bara hægt að finna allt á google og ómögulegt að búa til spurningaleiki á netinu þess vegna. Það verður bara keppni hver er færastur í að slá inn leitarorðum.

  11. Þá sagði hildigunnur:

    og hver er fljótastur inn á síðuna.

  12. Þá sagði Harpa:

    …… viku síðar…..
    ekki eru þetta hraðaspurningar? ;-)

  13. Þá sagði Ásgeir:

    Ég hef alltaf litið svo á að í svona leikjum væri heiðursmannasamkomulag um að nota ekki leitarvélar.

Leggðu orð í belg