Archive for október, 2006

Stórkostlega gaman!

sunnudaginn, október 15th, 2006

Frábært partý!!

Nýtt veffang

laugardaginn, október 14th, 2006

Ég var að breyta veffangi þessa bloggs, eins og sjá má hér að ofan.

Hleranir

miðvikudaginn, október 11th, 2006

Þegar ég var 14 eða 15 ára var vinur minn í sumarvinnu í Múlastöð, þar sem faðir hans var símvirki. Einn föstudagseftirmiðdag heimsótti ég hann í vinnuna. Þá voru þar allir starfsmenn að skemmta sér við að hlusta á símtöl af handahófi. Öllum fannst þetta mjög fyndið nema mér, sem blöskraði.

Það var reyndar mjög algeng tilfinning í þá daga. Og ef til vill enn.

PS: er nafnorðið af blöskra blöskur, eins og öskur af öskra?

Böstaður af stjórnmálalögreglunni.

miðvikudaginn, október 11th, 2006

Hvernig verður þetta nýja embætti sem ónafngreindur dómsmálaráðherra er að fara að búa til? Mun það hafa ótakmarkaðar hlerunarheimildir?

Hleranir í dag eru allt annar hlutur en þær voru á dögum kalda stríðsins. Nú þarf til dæmis ekki lengur að tengja neins staðar inn á línuna, það er bara nóg að afrita gagnastraum í símstöð og er hægt að gera frá tölvu hvaðan sem er.

Verður þetta pólitískt skipað embætti?

Verður hægt að fylgjast með og skrá allt sem embættið gerir í krafti síns embættis? Mun Alþingi fá að vita hvað er að gerast?

Falskur gítar

miðvikudaginn, október 11th, 2006

Ég var að komast að því að til að gera gítarinn alveg réttan þarf að stilla G-strenginn kvarttón lægra en ferund fyrir ofan D-strenginn. Síðan stilla B (eða H ef þú fórst í alvöru tónlistarnám hér á landi) eftir G og E eftir lægri E.

miðvikudaginn, október 4th, 2006

Meinlætalifnaður

þriðjudaginn, október 3rd, 2006

Nú, rétt rúmlega ári eftir að ég hætti að brúka tóbak er ég hættur að drekka kaffi. Þess í stað drekk ég te, aðallega Special Gunpowder, en slæ þó ekki hendinni á móti Darjeeling.