Archive for nóvember, 2006

Bækur sem höfðu áhrif á mig í menntaskóla

fimmtudaginn, nóvember 30th, 2006

Hér er listi af nokkrum þeim bókum sem ég las í menntaskóla (og reyndar sumar fyrr) og höfðu hvað mest áhrif á mig á þeim viðkvæma aldri:

Lasinn

þriðjudaginn, nóvember 28th, 2006

Ég vaknaði í morgun og fannst ég ekki geta andað. Röddin var orðin að raspandi bassarödd og ég hóstaði upp grænu slími. Ég hefði ekki átt að labba svona mikið um berhöfðaður á laugardagskvöldið, en þá fór ég á jólahlaðborð Reiknistofnunar, þaðan í fimmtugsafmæli Kjartans mágs míns og þaðan á bæjarrölt þar sem ég kom meðal annars við á Domo. Mjög gott kvöld en engin ævintýri.

Ég eldaði mér kjötsúpu með engifer og um hádegisbilið var röddin farin að hljóma eins og í manneskju, en ennþá líður mér ekki nógu vel. Ég býst samt við að verða orðinn góður á morgun.

Ritstíflan

fimmtudaginn, nóvember 23rd, 2006

Mér sýnist hún vera að hverfa.

Mig vantar íbúð til bráðabirgða

fimmtudaginn, nóvember 16th, 2006

Ég þarf að flytja eitthvert burt. Helst langar mig til Grænhöfðaeyja, en það er eitthvað erfitt núna, þannig að ég geri mig ánægðan með litla leiguíbúð í 101 eða 105 (hugsanlega 107) í nokkra mánuði.

Tíu ár

miðvikudaginn, nóvember 15th, 2006

Í dag eru nákvæmlega tíu ár síðan ég hóf fyrst störf hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands.

Annað blogg

þriðjudaginn, nóvember 14th, 2006

Í tilefni nýlegra frétta hef ég stofnað til nýs bloggs um stjórnmálaumræðu. Ég mun auðvitað halda áfram að blogga hér um önnur hjartans mál.

Skilinn

föstudaginn, nóvember 10th, 2006

Við hjónin fórum til sýslumanns í morgun og sóttum um skilnað að borði og sæng. Þetta hefur verið í bígerð í nokkurn tíma hjá okkur og er síður en svo nein hvatvísisákvörðun. Við erum góðir vinir og við höfum ákveðið að halda því áfram, en hætt er að slettist upp á vinskapinn ef við byggum öllu lengur saman.