Skilinn
Við hjónin fórum til sýslumanns í morgun og sóttum um skilnað að borði og sæng. Þetta hefur verið í bígerð í nokkurn tíma hjá okkur og er síður en svo nein hvatvísisákvörðun. Við erum góðir vinir og við höfum ákveðið að halda því áfram, en hætt er að slettist upp á vinskapinn ef við byggum öllu lengur saman.
10. nóvember 2006 klukkan 12:44
í dag er nákvæmlega ár síðan ég og minn fyrrverandi vorum hjá sýslumanni í sömu erindagjörðum…
þetta er ekki létt.
10. nóvember 2006 klukkan 13:39
10. nóvember 2006 klukkan 13:59
Æ blómið mitt…. Altaf helvítis leiðindi að standa í svona….. Hugsa til ykkar.
10. nóvember 2006 klukkan 15:48
Hvað er í gangi, ég og minn fyrrverandi vorum hjá sýslumanni fyrir þremur árum, 10 nóvember. Í alvöru, ég var að tékka í gömlu dagbókinni. (ég verð nú að viðurkenna að mér hefur sjaldan létt jafn mikið eins og þegar ég fékk það í gegn, en það er svo einstaklingsbundið).
Vonandi gengur þetta nú allt eins snurðulaust fyrir sig hjá ykkur og hægt er.
10. nóvember 2006 klukkan 18:17
Ja hérna skilnaður númer tvö sem ég heyri af í dag. Vona Brynhildar vegna að þið getið verið vinir.
11. nóvember 2006 klukkan 9:15
leitt að heyra en þetta er oftar en ekki fyrir bestu, gangi ykkur vel
13. nóvember 2006 klukkan 23:26
Furðulegur andskoti.
Ég var búin að lesa þessa færslu tvisvar þegar ég fattaði að það er slétt ár síðan ég fór til sýlsumanns og staðfesti samningana sem við hjónaleysin undirrituðum hjá löffa deginum áður. Ég vona svo innilega ykkar allra vegna að þið hafið meiri þroska til að bera en ofangreindir aðilar.
Amen.
14. nóvember 2006 klukkan 11:04
Samhryggist, en óska ykkur alls hins besta og í Guðanna bænum haldið vinskapnum - allra vegna.