Tíu ár

Í dag eru nákvæmlega tíu ár síðan ég hóf fyrst störf hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands.

20 svör við færslunni “Tíu ár”

  1. Þá sagði eddi:

    til hamingju með það

  2. Þá sagði Ms. G.:

    Hattar og knöll?

  3. Þá sagði Fríða:

    Það var nú vel af sér vikið. Sé ekki sjálfa mig vera 10 ár á sama vinnustað.

  4. Þá sagði Elías:

    Ég er nú yfirleitt þannig að ef mér líkar vel að vera einhvers staðar, þá breyti ég frekar kringumstæðunum ef mér leiðast þær, frekar en að fara eitthvert annað. Stundum er það samt ekki hægt.

  5. Þá sagði Harpa:

    Allt að gerast í tímamótamálum bara. Gangi þér bara vel í framtíðinni góurinn. Í alvörunni.

  6. Þá sagði hildigunnur:

    úff!

    þar rifjaði ég upp að ég er víst búin að vera 14 ár á tveimur af mínum þremur :-O (ókei, þremur af fjórum ef við teljum heimaaðsemja með)

    til hamingju með úthaldið :-)

  7. Þá sagði baun:

    til lukku reiknistofnun með Elías:)

  8. Þá sagði Elías:

    Ég hef reyndar ekki unnið allan þennan tíma hjá RHÍ, heldur var ég í 23 mánuði frá mars 2001 til febrúar 2003 hjá Skýrr hf.

    Ég hef fátt um það að segja annað en að RHÍ er mikið framsæknari, dugmeiri, nýjungagjarnari og sveigjanlegri stofnun.

    Ég hef stundum heyrt fólk halda því fram að ríkisstofnanir séu verri en einkafyrirtæki. Það eina sem ég hef um það að segja er að fólk ætti ekki að trúa öllu sem það les, heldur frekar fylgjast með raunveruleikanum í kringum sig.

  9. Þá sagði eddi:

    ehemm.. ég er nú að vinna hjá ríkisstofnun og ég get t.d ekki verið að sinna veiku barni nema að taka það út sem frídag af sumarfríi, þegar á móti ég gat teki frí vegna barns á gamla staðnum, Símanum, án vandræða og vinnu/launataps.
    og þetta er bara eitt mál, en þau eru nokkuð mörg önnur..

  10. Þá sagði Fríða:

    Ég hef ekki samaburð, hef alltaf unnið hjá opinberum stofnunum. Ja.. nema sumarvinnan þarna í gamla daga, en það er ekki að marka. Mig hefur nú aldrei langað til að sækja um vinnu hjá einkafyrirtæki. Og ég held líka að fólk ætti að vara sig á því að alhæfa.. þá kemur það bara upp um eigin fordóma.

  11. Þá sagði eddi:

    Fríða: hver er að alhæfa hérna?

  12. Þá sagði Elías:

    Ég var að alhæfa. :-)

    Um leið var ég að deila á þá alhæfingu að ríkisstofnanir séu af einhverjum ástæðum verri en aðrar stofnanir. Hafa margir gengið svo langt að telja að “stofnanadauði” (á Ensku injelitis)sem Cecil Northcote Parkinson lýsti í bók sinni Parkinson’s Law: The Pursuit of Progress (1958) eigi við allar ríkisstofnanir og einungis ríkisstofnanir. Hins vegar vill einmitt svo til að mín reynsla hefur sýnt mér hið gagnstæða.

  13. Þá sagði baun:

    mér finnst fáránlegt að fá ekki frí til að vera heima hjá veiku barni, en það er auðvitað skömm að því hversu fáa veikindadaga maður hefur rétt á -óháð fjölda barna, þ.e. sá sem á eitt barn á rétt á sama fjölda veikindadaga og sá sem á fleiri

    ég á þrjú börn og þegar þau voru minni, þá “kláruðum” við hjónin þessa veikindadaga ef þau voru svo ótillitssöm, ungarnir, að fá pestir ekki samtímis…

  14. Þá sagði Elías:

    Eddi: eruð þið með sameiginlega forsjá? Ef ekki, þá gæti það verið hængurinn á málinu.

  15. Þá sagði hildigunnur:

    Hvaða rugl er þetta með frídagana, Eddi? Ég hélt að maður ætti skilyrðislaust rétt á ákveðið mörgum frídögum á ári vegna veikinda barna (nema veit ekki þetta með forsjárpakkann, eins og Elías nefnir). Hvaða stofnun er þetta eiginlega sem er svona ósveigjanleg?

    Hef annars sömu reynslu og síðueigandi, hef unnið bæði hjá opinberum og einkaaðilum og það er svo sannarlega ekki þannig að þær opinberu séu verri eða fólkið sé að leggja sig eitthvað minna fram. Fer allt saman eftir yfirmanni, myndi ég halda.

  16. Þá sagði Fríða:

    öööö ég var ekki að segja að neinn væri að alhæfa, þetta var meira bara svona út í loftið

  17. Þá sagði eddi:

    við erum með 50/50 forræði og hann er með lögheimili hjá mér og hún er með umgengisrétt uppá 1 og 1/2 viku á mánuði

  18. Þá sagði Elías:

    OK, þá áttu lögboðna 2 veikindadaga fyrir barnið í mánuði, minnir mig.

  19. Þá sagði hildigunnur:

    tja, nema þú sért verktaki?

  20. Þá sagði Barbie:

    Lögin kveða á um 7 daga á ári vegna veikinda barna. Starfsmaðurinn sjálfur á rétt á 2 dögum á mánuði. Flest fyrirtæki taka nú veikindi barna af veikindum starfsmannsins sé starfsmaðurinn búinn að fullnýta dagana 7. Get ímyndað mér það að ríkið sé ekkert liðlegt í svona málum án þess að ég viti neitt um það.

Leggðu orð í belg