Lasinn

Ég vaknaði í morgun og fannst ég ekki geta andað. Röddin var orðin að raspandi bassarödd og ég hóstaði upp grænu slími. Ég hefði ekki átt að labba svona mikið um berhöfðaður á laugardagskvöldið, en þá fór ég á jólahlaðborð Reiknistofnunar, þaðan í fimmtugsafmæli Kjartans mágs míns og þaðan á bæjarrölt þar sem ég kom meðal annars við á Domo. Mjög gott kvöld en engin ævintýri.

Ég eldaði mér kjötsúpu með engifer og um hádegisbilið var röddin farin að hljóma eins og í manneskju, en ennþá líður mér ekki nógu vel. Ég býst samt við að verða orðinn góður á morgun.

13 svör við færslunni “Lasinn”

  1. Þá sagði hildigunnur:

    hei, ég var einmitt í útgáfupartíi á DOMO á föstudagskvöldið, hafði ekki hugmynd um að staðurinn yrði eiginlega ekki opnaður fyrr en kvöldið eftir :-D

    farðu annars vel með þig. Heima á morgun líka! (og kaupa sér húfu… ;-) )

  2. Þá sagði HT:

    Seinast þegar ég vissi átti nú Elías mikla forláta húfu, með rússnensku sniði.

  3. Þá sagði hildigunnur:

    nú, nota húfu, þá…

  4. Þá sagði Fríða:

    Kannski hann þori ekki að nota húfu af ótta við að fólk haldi þá að hann sé sköllóttur?

  5. Þá sagði Elías:

    Húfur eru eins og bílar, allt of mikið vesen að parkera þeim þegar maður er ekki að nota þær. Annars er ég að hressast.

  6. Þá sagði baun:

    góðan bata Elías:)

  7. Þá sagði Elías:

    Já, ég er ágætlega hress í dag, meira að segja hressari en ég var í fyrradag, þegar ég hélt að ég kenndi mér einskis meins.

  8. Þá sagði Systa:

    Farðu í Jurtaapótekið á Laugavegi og fáðu Mími það drepur allan hósta, kvef og flensur. Þú verður að vera hress er ekki forval á laugardaginn?

  9. Þá sagði hildigunnur:

    jú, það ríður á að vera hress á laugardaginn!

  10. Þá sagði Barbie:

    Hvað er domo??? Og ég sem taldi mig vita allt…

  11. Þá sagði Elías:

    Sjá http://www.google.is/search?q=domo+site%3Ais

  12. Þá sagði Barbie:

    úúú, takk. Allir 12 ára þarna inni?

  13. Þá sagði Elías:

    Tjah … fólkið sem ég hitti þarna var á mínum aldri eða eldra. Svo voru einhverjir fótboltastrákar þarna, ég þekki þá ekki, þeir eru tvíburar.

Leggðu orð í belg